Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Örnám

Örnám er mikilvæg viðbót við námsframboð Listaháskóla Íslands því það gerir okkur kleift að bjóða sveigjanlegt, hnitmiðað og einingabært háskólanám sem svarar þörfum samtímans. Um er að ræða nám á háskólastigi sem lúta sömu gæðakröfum og annað háskólanám, eru metnar í ECTS-einingum.

Vorönn 2024

Af hverju örnám?

Við Listaháskóla Íslands leggjum ríka áherslu á að þróa námsframboð sem endurspeglar bæði kröfur samtímans og hlutverk háskóla í þekkingarsköpun, miðlun og símenntun. Innleiðing örnáms er liður í þeirri stefnu og felur í sér að bjóða styttri, afmörkuð námskeið á háskólastigi sem eru einingabær og uppfylla sömu gæðaviðmið og annað nám við skólann. Með örnámi er leitast við að skapa sveigjanlegan vettvang fyrir markvissa þekkingaröflun þar sem áhersla er lögð á skýrt afmörkuð viðfangsefni, faglega dýpt og hagnýta tengingu við viðkomandi fræðasvið og starfsvettvang.

Á þessari síðu verða kynnt örnámsnámskeið sem standa til boða við Listaháskóla Íslands. Námskeiðin eru metin til eininga og geta, eftir því sem við á og í samræmi við reglur skólans, nýst sem hluti af frekara námi til prófgráðu. Þannig opnast nemendum og öðrum þátttakendum möguleiki á að byggja upp nám sitt í skrefum, þar sem einstök námskeið geta annað hvort staðið sjálfstætt eða orðið hluti af stærri námsferli. Þetta fyrirkomulag styður við aukið samhengi og samfellu milli námsleiða og eykur sveigjanleika innan háskólakerfisins, án þess að slakað sé á kröfum um fræðileg og listræn gæði.

Með þróun örnáms leitast Listaháskóli Íslands jafnframt við að efla tengsl við atvinnulíf og skapandi greinar, bregðast við örum breytingum í þekkingarumhverfi og stuðla að virkri símenntun. Örnám skapar tækifæri fyrir fjölbreyttan hóp þátttakenda – starfandi fagfólk, listamenn, hönnuði og aðra sem vilja viðhalda og þróa hæfni sína, sem og einstaklinga sem hyggjast hefja nám á háskólastigi eða snúa aftur til náms eftir hlé. Með þessum hætti er örnám hluti af víðtækari sýn skólans á aðgengi, gæði og samfellu í námi, þar sem þekking og færni eru byggð upp í lifandi samspili við samfélag, menningu og atvinnulíf.

Umsóknargátt

Til að sækja um í Opna LHÍ er rafræn umsókn fyllt út, umbeðin gögn látin fylgja og í kjölfarið þarf að greiða umsóknargjaldið. Þegar þessum skrefum er lokið og þegar gengið hefur verið úr skugga um að umsækjandi hafi skilað inn öllum nauðsynlegum upplýsingum og fylgiskjölum fær hann staðfestingu í tölvupósti á að rafræn umsókn sé fullgild og móttekin.

Opnað fyrir umsóknir

Viðvarandi

Umsóknarfrestur

Þremur vikum fyrir upphaf námskeiðs

Umsóknum svarað

Við skráningu

Verðskrá

Verð er tilgreint í lýsingu hvers námskeiðs og getur verð verið breytilegt milli námskeiða.
Greiða þarf námskeiðagjöld 3 vikum áður en námskeið hefjast til þess að staðfesta þátttöku.

Á döfinni í Opna LHÍ