Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Leikritagreining

image description
  • Dagsetning

    8.september - 24.nóvember

  • Verð

    55.000 kr.

  • Fyrirkomulag

    Fjarnám | Staðnám

  • Sækja um

Á þessu námskeiði fá nemendur tækifæri til að kafa inn í heim sviðslista og læra að lesa, túlka og greina leikverk á skapandi og gagnrýninn hátt. Unnið verður með fjölbreyttar aðferðir til að skilja hvernig leikrit, gjörningar og sviðsverk verða til, hvernig þau hafa áhrif á áhorfendur og hvernig þau endurspegla samfélag, menningu og samtímann.

Nemendur kynnast bæði klassískum aðferðum leikritagreiningar, sem eiga rætur í hugmyndum Aristótelesar, og nýrri nálgunum sem tengjast póstdramatískum sviðslistum þar sem mörk leikhúss, gjörninga og myndlistar verða oft óskýr. Jafnframt er skoðað hvernig ólíkir straumar og stefnur í leikritun hafa þróast í gegnum tíðina og hvernig samfélagslegar breytingar móta sviðslistir.

Áhersla er lögð á að nemendur þrói eigið gagnrýnið auga og læri að nálgast sviðsverk frá mismunandi sjónarhornum. Með stuttum og skapandi verkefnum frá upphafi námskeiðsins fá nemendur þjálfun í að greina ólík verk, ræða þau og tengja við fræðilegar hugmyndir á lifandi og aðgengilegan hátt.

Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á leikhúsi, menningu, frásögnum og því hvernig sviðslistir geta hjálpað okkur að skilja samfélagið, mannleg samskipti og samtímann á nýjan hátt.

Hæfniviðmið:

Í lok námskeiðsins ætti nemandi að geta:

  • greint á milli ólíkra greiningaraðferða sviðslista
  • rætt samfélagslegt og sögulegt samhengi þessara aðferða
  • aðgreint ólíka strauma og stefnum innan leikritunar
  • beitt af nokkurri færni ólíkum aðferðum við greiningu leikverka
  • rökrætt í máli og riti ýmis málefni sem tengjast leikritagreiningu

Staðsetning: Fjarkennsla og Húsnæði Háskólans á Akureyri

Dagsetningar kennslu:
September
Þriðjudagur 8. september – kl. 16:30-18:00
Þriðjudagur 15. september – kl. 16:30-18:00
Þriðjudagur 22. september – kl. 16:30-18:00
Þriðjudagur 29. september – kl. 16:30-18:00

Október
Laugardagur 3 okt, –  kl 11:00-15:00 – kennsla fer fram í húsnæði Háskólans á Akureyri
Þriðjudagur 20 okt  – kl. 16:30-18:00
Þriðjudagur 27 okt  – kl. 16:30-18:00
Þriðjudagur 3 nóv  – kl. 16:30-18:00
Þriðjudagur 10 nóv – kl.  16:30-18:00
Þriðjudagur 17 nóv – kl.  16:30-18:00
Þriðjudagur 24 nóv – kl. 16:30-18:00

Hæfniviðmið

Í lok námskeiðsins ætti nemandi að geta:   greint á milli ólíkra greiningaraðferða sviðslista rætt samfélagslegt og sögulegt samhengi þessara aðferða  aðgreint ólíka strauma og stefnum innan leikritunar  beitt af nokkurri færni ólíkum aðferðum við greiningu leikverka  rökrætt í máli og riti ýmis málefni sem tengjast leikritagreiningu

Staðsetning

Fjarkennsla. og Háskólinn á Akureyri

Tungumál kennslu

Íslenska

Umsóknarfrestur

3. sep 2026