Að hugsa í sýningum – Inngangur að sýningagerð og sýningastjórnun
- Dagsetning
- Fimmtudagar 28. janúar til 11. apríl
- Verð
- 145.000 kr.
- Einingar
- 5 ECTS
Námskeiðið er inngangur að sýningagerð og sýningastjórnun og veitir nemendum grunnfærni í þróun, undirbúningi og framsetningu sýninga í samtímanum.
Áhersla er lögð á sýningar sem ferli þar sem hugmynd, rannsókn, framkvæmd og miðlun mætast í heildrænni upplifun.
Nemendur kynnast lykilhugtökum og aðferðum sýningastjórnunar og fá innsýn í verkferla frá fyrstu hugmynd til framkvæmdar. Fjallað er um hlutverk sýningastjóra og þróun sýningagerðar, sýningar sem miðil og vettvang umræðu í samtímanum, auk samvirkni rýmis, frásagnar og upplifunar. Einnig er unnið að þróun sýningahugmynda, rannsóknarferli, vali verka, uppsetningu, miðlun og tengsl við áhorfendur.
Kennsla fer fram með fyrirlestrum, umræðum, lestri og verklegum verkefnum. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda og þróun eigin sýningarhugmyndar á meðan á námskeiði stendur. Nemendur vinna að smærri verkefnum sem tengjast mismunandi stigum sýningarferlisins og kynna eigin verkefni í lok námskeiðs.
Örnámskeið – námskeiðið er kennt hjá Opna LHI í samstarfi við Myndlistardeild LHÍ. Námið samsvarar 5 ECTS.
Námið er gæðavottað og skráð sem grunnnám: ISQF 5.2 / EQF 6 / QF-EHEA fyrsta háskólaþrep.
Staðsetning: Húsnæði Listaháskólans í Stakkahlíð
Dagsetningar:
Kennt verður á fimmtudögum á vorönn 2027
2 klst í senn, kl. 16:00 – 18:00
28. janúar
4., 11., 18., og 25. febrúar
4., 11. og 18. mars
1. og 8. apríl
Hægt er að sækja um styrk hjá stéttarfélagi fyrir náminu. Nánari upplýsingar Hér
Hæfniviðmið
Hæfniviðmið: Í lok námskeiðs geta nemendur: Þekking: Útskýrt helstu hugtök, hlutverk og verkferla sýningagerðar og sýningastjórnunar á vettvangi myndlistar og hönnunar. Færni: Greint samspil hugmyndar, verka, rýmis, miðlunar og upplifunar áhorfenda í sýningu á grundvelli sýningarheimsóknar. Skipulagt helstu þætti eigin sýningarhugmyndar með tilliti til vals verka, samhengis, rýmis og miðlunar. Hæfni: Þróað eigin sýningarhugmynd á grundvelli rannsóknar og með hliðsjón af listrænu inntaki, samhengi og áhorfendum. Rökstutt helstu ákvarðanir um eigin sýningarhugmynd í stuttri munnlegri og myndrænni lokakynningu.- Kennari
- Hanna Guðrún Styrmisdóttir
- Staðsetning
- Stakkahlíð 1, húsnæði Listaháskóla Íslands
- Tungumál kennslu
- Íslenska
- Umsóknarfrestur
- 8. jan 2027
- Hámarksfjöldi
- 15