Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuÁ námskeiðinu kynnast nemendur fjölbreyttum spuna aðferðum sviðslista í gegnum hagnýtar æfingar, hópavinnu og verklega kennslu á gólfi. Lögð verður áhersla á að efla færni nemenda í samvinnu, sjálfsöruggri framkomu, skapandi hugsun og líkamlegri tjáningu, auk þess sem unnið verður með aðferðir sem styðja við og auka skilning nemenda á hlutverki spunaleikarans.
Áhersla verður lögð á verklega vinnu úti á gólfi en einnig verður snert á því hvernig vinna má texta/ hnadrit upp úr spuna. Í því samhengi verður unnið með fjölbreyttar æfingar sem efla samvinnu, ímyndunarafl og framkomu.
Markmið námskeiðsins er að nemendur tileinki sér þessar aðferðir og geti beitt þeim í fjölbreyttu samhengi, bæði sem kennarar, leiðbeinendur eða þátttakendur í skapandi samstarfi.
Í lok námskeiðs ætti nemandi að geta:
Staðsetning: Háskólinn á Akureyri
Dagsetningar:
Háskólinn á Akureyri
íslenska
31. júl 2026
Fáðu fréttir af nýjum námskeiðum og öðrum viðburðum.