Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuVið skráningu á námskeið samþykkir viðskiptavinur greiðsluskilmála og telst þá kominn á skuldbindandi samningur milli aðila.
Námskeiðsgjald er innheimt með greiðslukorti við skráningu. Einnig er hægt að velja að taka kortalán með vöxtum. Um kortalánin gilda skilmálar Rapyd.
Heimilt er að gera nafnabreytingu á áður staðfestri skráningu, þ.e. ef skráður þátttakandi forfallast er hægt að skrá annan aðila í hans stað. Beiðni um slíkt skal berast til Opna LHÍ í tölvupósti áður en námskeið hefst.
Afskráning skal berast til Opna í tölvupósti eigi síðar en 5 virkum dögum fyrir upphafsdag námskeiðs (nema annað sé tekið fram í námskeiðslýsingu). Eftir það er viðkomandi skuldbundinn til að greiða námskeiðsgjald að fullu og hvorki er hægt að fá það fellt niður né endurgreitt.
Opni LHÍ áskilur sér rétt til að fella niður eða fresta námskeiðum ef óviðráðanlegar aðstæður koma upp. Sé námskeið fellt niður eru námskeiðsgjöld endurgreidd að fullu. Ef tímasetningu námskeiðs er breytt færist þátttakandi sjálfkrafa á nýja tímasetningu og fær um það tilkynningu í tölvupósti. Ef breytt tímasetning hentar þátttakanda ekki á hann rétt á fullri endurgreiðslu láti hann vita innan þeirra tímamarka sem tilgreind eru í póstinum.
Allar endurgreiðslur vegna námskeiða eru framkvæmdar innan 14 daga frá því að skilyrði endurgreiðslu teljast uppfyllt, með sama greiðslumiðli og notaður var við upphafleg kaup.
Fyrirspurnir um greiðslur og greiðslufyrirkomulag má senda í tölvupósti á netfangið
opni@lhi.is
Námskeiðsgjald er innheimt með greiðslukorti við skráningu þegar umsókn hefur verið
samþykkt af viðkomandi deild við LHÍ. Hætti umsækjandi við að sækja námskeið eftir að umsókn hefur verið samþykkt höldum við eftir 20.000 kr. fyrir umsýslugjald. Ef umsækjandi hættir við þátttöku eftir að námskeið er hafið er námskeiðsgjald óafturkræft og innheimt að fullu. Beiðni um afskráningu þarf að berast til Opni LHÍ með tölvupósti á netfangið. Fyrirspurnir um greiðslur og greiðslufyrirkomulag hjá Opna LHÍ má senda í tölvupósti á netfangið opni@lhi.is
Opni LHÍ meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög og fylgir Persónuverndarstefnu Listaháskóla Íslands. Þær upplýsingar sem viðskiptavinir láta stofnuninni í té eru einungis notaðar til að auðvelda þjónustu við þá vegna þess náms/námskeiðs sem það hefur skráð sig í.
Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Opna Listaháskóla Íslands á grundvelli þessara skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.