Uppistand fyrir alla
- Dagsetning
- 12.-29. október
- Verð
- 70.000 kr.
- Fyrirkomulag
- Staðnám
Hefur þú einhvern tímann hlegið að sjálfum þér og hugsað: „Þetta gæti verið efni í uppistand“? Þá er þetta námskeið fyrir þig.
Á Uppistandi fyrir alla lærir þú að breyta eigin reynslu í skemmtilegar og áhrifaríkar frásagnir — hvort sem þú ert að segja sögur í veislu, taka til máls á fundi eða dreymir um að standa á sviði.
Engin reynsla er nauðsynleg, aðeins áhugi og jákvætt hugarfar. Þú kynnist því hvernig byggja má upp sterka gamansögu, nýta rödd og líkamsbeitingu markvisst, þróa persónulegan stíl og ná tengingu við áhorfendur. Einnig er fjallað um framkomukvíða og leiðir til að takast á við hann. Megináherslan er þó á verklega vinnu þar sem þú þróar þitt eigið efni og flytur það í styðjandi og hvetjandi umhverfi.
Tími: 18-20
Dags:
Mánudagurinn 12. okt,
Fimmtudagurinn 15. okt,
Mánudagurinn 19. okt,
Fimmtudagurinn. 22. okt,
Mánusdagurinn 26. okt
og lokakvöldið fimmtudaginn 29. okt. – uppistand í Þjóðleikhúskjallaranum
Staðsetning: Húsnæði Listaháskólans í Laugarnesi
Styrkur:
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Sjá frekari upplýsingar: Fræðslustyrkir
Kennari: Þorsteinn Guðmundsson leikari og sálfræðingur
- Kennari
- Þorsteinn Guðmundsson Stephensen
- Tungumál kennslu
- Íslenska
- Umsóknarfrestur
- 12. okt 2026