Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku
Staðnám

Spuna aðferðir sviðslista

Dagsetning
25.september - 20. nóvember
Verð
55.000 kr.
Einingar
6 ECTS
Fyrirkomulag
Staðnám
Sækja um

Á þessu námskeiði fá nemendur að kynnast heimi spunaleikhúss og skapandi sviðslista í gegnum lifandi, hagnýtar og skemmtilegar æfingar. Unnið er með fjölbreyttar spunaaðferðir sem hjálpa þátttakendum að efla sjálfstraust, samskipti, ímyndunarafl og getu til að vinna skapandi með öðrum.

Kennslan fer að stórum hluta fram á gólfi þar sem nemendur taka þátt í verklegum æfingum, hópavinnu og skapandi leik. Áhersla er lögð á samvinnu, líkamlega tjáningu, hlustun og nærveru, auk þess að þróa færni til að bregðast við óvæntum aðstæðum og skapa efni í sameiningu með öðrum.

Nemendur fá einnig innsýn í hvernig hægt er að þróa texta, senur og handrit út frá spuna og hugmyndavinnu. Með fjölbreyttum æfingum er unnið að því að styrkja framkomu, ímyndunarafl og sköpunarkraft þátttakenda á opinn og hvetjandi hátt.

Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á leikhúsi, sköpun, samskiptum og skapandi samstarfi, hvort sem markmiðið er að efla færni í kennslu, leiðsögn, sviðsframkomu eða einfaldlega öðlast meira öryggi og frelsi í tjáningu og samvinnu með öðrum.

Hæfniviðmið:

Í lok námskeiðs ætti nemandi að geta: 

  • rætt og útskýrt ólíkar spunaðferðir
  • beitt ólíkum spunaðferðum verklega 
  • skrifað texta / handrit út frá spuna
  • greint ólík tækifæri spunaaðferða í tengslum við fjölbreytt samhengi  
  • nýtt spuna sem skapandi verkfæri
  • ígrundað eigin vinnu, bæði munnlega og skriflega, í samhengi við námsefnið

Staðsetning: Háskólinn á Akureyri

Dagsetningar:

Föstudagur 25. sept. 15:00-19:00
Laugardagur 26. sept 11:00-15:00
Föstudagur 9. okt 15:00-19:00
Laugardagur 10. okt 11:00-15:00
Föstudagur 23. okt 15:00-19:00
Laugardagur 24. okt 11:00-15:00
Föstudagur 6. nóv  15:00-19:00
Laugardagur 7. nóv 11:00-15:00
Föstudagur 20. nóv. 15:00-19:00
Laugardagur 21. nóv. 11:00-15:00
Kennari: Guðmundur Felixson
Guðmundur Felixson útskrifaðist sem sviðshöfundur frá Listaháskóla Íslands árið 2015. Síðan þá hefur hann komið víða við í íslenskum sviðslistum og starfað sem leikstjóri, tæknimaður, leikari og fleira. Hann hefur kennt og sýnt spuna með Improv Ísland frá stofnun hópsins árið 2015. Guðmundur er nýfluttur heim frá Prag þar sem hann nam leikstjórn við Academy of Performing Arts in Prague.
Hólmfríður Hafliðadóttir útskrifaðist sem leikkona frá Listaháskóla Íslands árið 2024. Hún er nú að hefja sitt annað ár sem fastráðin leikkona við Leikfélag Akureyrar. Hólmfríður hefur sýnt spuna með Improv Ísland frá árinu 2022.

Sækja um Nánari upplýsingar

Kennari
Guðmundur Felixson
Staðsetning
Háskólinn á Akureyri
Tungumál kennslu
íslenska
Umsóknarfrestur
25. sep 2026
Hámarksfjöldi
15