Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku
Fjarnám

Sögur Húsanna

Dagsetning
12. - 26 janúar
Verð
65.000 kr.
Fyrirkomulag
Fjarnám
Sækja um

Námskeiðið fjallar um valin hús innan greinaflokksins Sögur húsanna sem kom út í Morgunblaðinu frá 2001 til 2008. Greinarnar eiga það sameiganlegt að varpa ljósi á þær persónulegu forsendur sem standa að baki mikilvægra húsa í alþjóðlegu samhengi.

Hvernig getur arkitekt hannað hús fyrir unga systur sína sem nýlega er orðin ekkja? Upp á hvað getur arkitekt boðið þegar viðskiptavinur í hjólastól biður um flókna hönnun og að húsið verði hans eiginn heimur? Eða þá þegar listunnendur gefa arkitektinum fullt og ótakmarkað frelsi við hönnunina? Hvaða skýring er á því að nágrannar skjóta á hús arkitekts sem nú er hvað mest virtur á heimsvísu?

Húsin til umfjöllunar voru valin vegna einstakra eiginleika. Það er, auk þess að hafa undir höndum góða byggingarlist og virtan arkitekt, hafa verkkaupar tilfinningabundna sögu sem verkefnið er síðan spunnið úr. Án þeirrar vitneskju er húsið heldur torskilið. Náttúra, sorgarferli, niður í læk, breyttar líkamlegar aðstæður, ástríða fyrir arkitekt, trúarbrögð, friðhelgi, svo nokkuð sé nefnt, hafa leitt af sér einstakan arkitektúr.

Þessi nálgun er mikilvæg í umræðunni sem á sér stað í dag um gæði húsnæðis og þess að geta haft áhrif á hvernig húsnæði/heimili eru hugsuð.

Fjallað verður um 3 hús í hverjum tíma og þau tvinnuð saman við íslensk hús og hús nemenda að eigin vali. Hvaða saga býr að baki þeirra? Þá er líka spurt hvað gerir hús öðruvísi í Reykjavík, Akureyri og Ísafirði?

Vinnulag: Kennslan fer fram í fyrirlestrum, umræðum og stuttri verkefnavinnu þar sem nemendur fá æfingu í gagnrýnni hugsun.

Nemendur öðlast þekkingu á mismunandi nálgunum við það að teikna hús, þau sem verða til út frá samtali arkitekta og verkkaupa.

Að námskeiði loknu:

  • Hafa nemendur öðlast hæfni til að sjá hvað gerir hús sérstakt út frá samtali arkitekts og verkkaupa, næmi og tilfinningum.
  • Skilgreina nemendur önnur byggingarefni en steypu, stál og gler. Það er, óáþreifanleg efni og hugtök sem hafa áhrif á hönnun húss.
  • Skilja nemendur mikilvægi staðarins í húsagerð – í borgarumhverfi sem náttúru.
  • Skynja nemendur byggingalist út frá málefnanlegum þáttum og geta tekið virkan þátt í umræðum og uppbyggilegri gagnrýni.
  • Öðlast nemendur meiri skilningi um ábyrgð okkar á því hvernig við byggjum fyrir okkur sjálf og komandi kynslóðir.

Staðsetning: Námskeiðið fer fram á netinu

Dagsetningar: 12.-26. janúar kl.16.30-18.00

12. janúar
14. janúar
19. janúar
22. janúar
26. janúar

Kennari: Halldóra Arnardóttir
Halldóra Arnardóttir er listfræðingur með doktorsgráðu í arkitektúr og stjórnandi verkefnisins Listir og menning sem meðferð við Alzheimers. Doktorsritgerðin fjallaði um ítalska hönnun og arkitektúr frá 1945 til 1964. Hún er annar höfundur greinaflokksins Sögur húsanna auk þess sem hún hefur kennt og skrifað fjölda bóka um hönnun og arkitektúr heima og erlendis, og haldið fyrirlestra. Halldóra er meðeigandi SARQ arkitektastofunnar í Murcia á Spáni. Meðal verka henna má nefna Sögur húsanna (2001-2008) – https://sagahusanna.blogspot.com/, Manfreð Vilhjálmsson arkitekt (HIB. 2009), Kristín Guðmundsdóttir.

Sækja um Nánari upplýsingar

Kennari
Halldóra Arnardóttir
Staðsetning
Fjarnám
Tungumál kennslu
Íslenska
Umsóknarfrestur
12. jan 2027