Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku
Staðnám

Skapandi greinar, hagrænt gildi og stefnumótun – Örnám

Dagsetning
11.janúar - 22.febrúar
Verð
150.000 kr.
Einingar
5 ECTS
Fyrirkomulag
Staðnám
Sækja um

Hvernig eru skapandi greinar skilgreindar, studdar og metnar í samtímanum? Hér er á ferð þverfaglegt námskeið á meistarstigi þar sem áhersla er lögð á íslenskt menningar- og stefnumótunarumhverfi í samanburði við alþjóðlegar nálganir.

Í námskeiðinu er fjallað um kvikmyndir, tónlist, sviðslistir, hönnun, bókmenntir og myndlist sem listgreinar, atvinnugreinar og samfélagsleg fyrirbæri. Nemendur kynnast því hvernig opinber stefna mótar rekstrarumhverfi skapandi greina, hvernig styrkjakerfi og stofnanaumhverfi hafa áhrif á þróun þeirra og hvernig meta má hagrænt og menningarlegt gildi án þess að þrengja að listrænu sjálfstæði.

Sérstök áhersla er lögð á stefnumótunarskjöl, gögn, mælikvarða, útflutnings- og nýsköpunartækifæri, auk gagnrýninnar umræðu um tengsl menningarlegs virðis, samfélagslegs ávinnings og hagrænnar þýðingar. Nemendur vinna með íslensk og alþjóðleg dæmi og setja fram eigin rökstudda stefnumótunargreiningu eða tillögu fyrir tiltekna skapandi grein.

Kjarnaáherslur námskeiðsins byggir á þremur meginstoðum:

  • Skapandi greinar sem stefnumótunarviðfangsefni: Hvernig og hvers vegna móta stjórnvöld stefnu um listir og skapandi greinar? Hverjir skilgreina markmiðin, mælikvarðana og samfélagslegan ávinning?
  • Hagrænt gildi og verðmætasköpun: Hvernig má meta framlag listgreina til atvinnulífs, nýsköpunar, útflutnings, byggðaþróunar, ferðaþjónustu og ímyndar lands? Hvar liggja takmarkanir slíkra mælinga?
  • Gagnrýnin nálgun: Hvaða hættur fylgja því þegar litið er of þröngt á listir sem hagvaxtardrifkraft? Hvernig má halda saman listrænu frelsi, opinberum stuðningi og ábyrgri stefnumótun?

Kennari: Lilja Dögg Alfreðsdóttir alþjóðahagfræðingur og fv. menningarmálaráðherra

Staðsetning: Húsnæði Listaháskólans í Stakkahlíð 1

Dagsetningar: 11.janúar – 22.febrúar

Námskeiðið er kennt á mánudaga og miðvikudaga kl.16.30-18.30

Hæfniviðmið

Inntökuskilyrði: 

Umsækjendur þurfa að hafa lokið prófi á bakkalárstigi eða sambærilegu námi.

Námið er kennt hjá Opna Listaháskólanum og samsvarar 5 ECTS einingum á meistarastigi.

Námið er unnið í samstarfi við listkennsludeild LHÍ.

Kennt er á íslensku.

Markmið námskeiðs

Að námskeiði loknu eigi nemendur að geta:

  1. Greint og borið saman stefnumótun í ólíkum skapandi greinum;
  2. Skilið hvernig menningarlegt, samfélagslegt og hagrænt gildi skarast;
  3. Beitt grunnhugtökum úr menningarhagfræði og stefnumótun við mat á listgreinum;
  4. Unnið með íslensk og alþjóðleg stefnumótunargögn á gagnrýninn hátt;
  5. sett fram rökstudda stefnumótunartillögu eða greiningu fyrir tiltekna listgrein.

Hæfniviðmið: Nemandi skal að loknu námskeiði geta:

  1. útskýrt lykilhugtök skapandi greina sem menningarlegs, samfélagslegs og hagræns viðfangsefnis í íslensku og alþjóðlegu samhengi.
  2. greint opinber stefnumótunarskjöl um skapandi greinar með hliðsjón af markmiðum, mælikvörðum, hagsmunaaðilum og samfélagslegum ávinningi.
  3. beitt grunnhugtökum menningarhagfræði og stefnumótunar við mat á hagrænu og menningarlegu gildi tiltekinnar listgreinar.
  4. borið saman íslenskar og alþjóðlegar nálganir við stuðning, fjármögnun, útflutning eða nýsköpun í skapandi greinum.
  5. metið styrkleika, takmarkanir og möguleg áhrif hagrænna mælinga á listrænt sjálfstæði, opinberan stuðning og ábyrga stefnumótun.
  6. mótað rökstudda stefnumótunargreiningu eða tillögu fyrir tiltekna skapandi grein með vísun í gögn, fræðileg hugtök og stefnumótunarsamhengi.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Sjá frekari upplýsingar: Fræðslustyrkir

Sækja um Nánari upplýsingar

Kennari
Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Staðsetning
Húsnæði Listaháskóla Íslands - Stakkahlíð 1, 105 Reykjavík
Tungumál kennslu
Íslenska
Umsóknarfrestur
8. jan 2027