Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Skapaðu einstök leirverk með saggarbrennslu

image description
  • Dagsetning

    8.-22. september

  • Verð

    39.000 kr.

  • Fyrirkomulag

    Staðnám

  • Sækja um

Skapaðu einstök leirverk með saggarbrennslu
Á þessu námskeiði kynnast þátttakendur saggarbrennslu, spennandi brennsluaðferð í keramik þar sem samspil elds, náttúruefna og tilviljunar gefur hverju verki sitt einstaka yfirbragð.

Notast er við saggar, eldfast ílát sem hýsir leirverkin ásamt brennanlegum náttúruefnum á borð við þang, laufblöð, viðarspæni og önnur lífræn efni. Við brennsluna skilja efnin eftir sig óvænt mynstur, litbrigði og áferð sem gera hvert verk einstakt.

Í gegnum verklega vinnu fá þátttakendur innsýn í samspil efnis, vinnuferlis og tilviljunar. Farið er yfir undirbúning verkanna, hvernig þeim er komið fyrir í saggar og hvernig brennslan fer fram í rafmagnsofni.

Engin fyrri reynsla af leirvinnu eða keramik er nauðsynleg og námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem þeim sem vilja kynnast nýrri og spennandi brennsluaðferð.

Fyrsti hluti
Kynning á saggarbrennslu og aðferðinni. Þátttakendur móta verk úr leir og undirbúa þau fyrir brennslu.
Annar hluti
Leirverkunum er komið fyrir í saggar ásamt náttúruefnum og þau undirbúin fyrir síðari brennslu í rafmagnsofni.
Þriðji hluti
Saggarílátin eru opnuð, verkin hreinsuð og pússuð og þátttakendur taka fullunnin verk sín með sér heim.

Tímasetningar
8. september kl. 17:30–21:00
15. september kl. 17:30–20:00
22. september kl. 17:30–20:00

Leiðbeinandi
Martina Priehodová, MA, er myndlistarmaður og verkstæðisstjóri leir- og mótasmíðaverkstæðis við Listaháskóla Íslands.
Staðsetning
Leir- og mótasmíðaverkstæði Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91.


Kennari

Martina Priehodová

Staðsetning

Leir- og mótasmíðaverkstæði Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91.

Tungumál kennslu

Enska

Umsóknarfrestur

7. sep 2026