Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

List- og heimildaljósmyndun: Sjónræn samfélagsrýni

image description
  • Dagsetning

    2.september - 18.nóvember

  • Verð

    110.000 kr.

  • Fyrirkomulag

    distance learning

  • Sækja um

Á námskeiðinu kynnast nemendur aðferðum og hugmyndum við að skapa og skilja ljósmyndir. Lögð er áhersla á list-, heimilda- og samtímaljósmyndun sem skapandi aðferð til samfélagsrýni og gagnrýninnar ígrundunar.  Áfanginn felur í sér, rannsóknir, gagnrýna hugsun sem byggir á tilraunum og fjölbreyttum aðferðum sem hafa áhrif á útkomu ljósmynda og leiðir til að ígrunda þær.

Fjallað verður um hvernig samtímaljósmyndun getur varpað ljósi á félagsleg, menningarleg og pólitísk málefni og hvernig myndræn frásögn getur skapað rými fyrir nýjar raddir og sjónarhorn í samtímanum.  Nemendur kanna hvernig tilraunir, aðferðir og ákvarðanir hafa áhrif á útkomu ljósmynda og leiðir til að íhuga þær. Á námskeiðinu verða skoðuð verk listamanna og ljósmyndara sem vinna með samtímaljósmyndun, samfélagsleg inngrip, staðbundnar frásagnir og þátttökuaðferðir. Einnig verður fjallað um tengingu ljósmyndunar við rannsóknarvinnu, samtímalist og breytt hlutverk ljósmyndarinnar í nútímasamfélagi.

Markmið námskeiðsins er að nemendur þrói með sér gagnrýna og meðvitaða sýn á samtímaljósmyndun sem tjáningarform og skapandi þátt í samfélagsumræðu.

Hæfniviðmið:

Í lok námskeiðs ætti nemandi að geta:

  • skilgreint helstu hugmyndir, aðferðir og sögulegt samhengi list- og heimildarljósmyndunar
    • greint ljósmyndir út frá samfélagslegu, siðferðilegu og fagurfræðilegu sjónarhorni
    • beitt ólíkum aðferðum ljósmyndunar til eigin sköpunar og tjáningar
    • þróað eigin ljósmyndaverk sem endurspegla gagnrýna og ígrundandi afstöðu til samtímans
    • tekið virkan þátt í umræðum og gagnrýni á eigin verkum og annarra bæði munnlega og skriflega

Staðsetning: Námskeiðið fer fram á netinu.

Dagsetningar:

September:
2 sept – kl 16:30-18:00
9 sept –  kl 16:30-18:00
16 sept – kl 16:30-18:00
23 sept –  kl 16:30-18:00
30 sept  – kl 16:30-18:00

Október:
7 okt – kl 16:30-18:00
14 okt – kl 16:30-18:00
21 okt – kl 16:30-18:00

28 okt – kl 16:30-18:00

Nóvember:

4 nóv – kl 16:30-18:00
11 nóv – kl 16:30-18:00
18 nóv – kl 16:30-18:00

 


Hæfniviðmið

Í lok námskeiðs ætti nemandi að geta: skilgreint helstu hugmyndir, aðferðir og sögulegt samhengi list- og heimildarljósmyndunar • greint ljósmyndir út frá samfélagslegu, siðferðilegu og fagurfræðilegu sjónarhorni • beitt ólíkum aðferðum ljósmyndunar til eigin sköpunar og tjáningar • þróað eigin ljósmyndaverk sem endurspegla gagnrýna og ígrundandi afstöðu til samtímans • tekið virkan þátt í umræðum og gagnrýni á eigin verkum og annarra bæði munnlega og skriflega

Kennari

Katrín Bára Elvarsdóttir

Staðsetning

Háskólinn á Akureyri

Tungumál kennslu

íslenska

Umsóknarfrestur

31. ágú 2026