Leikritagreining
- Dagsetning
- 8.september - 24.nóvember
- Verð
- 55.000 kr.
- Einingar
- 6 ECTS
- Fyrirkomulag
- Staðnám
Á þessu námskeiði fá nemendur tækifæri til að kafa inn í heim sviðslista og læra að lesa, túlka og greina leikverk á skapandi og gagnrýninn hátt. Unnið verður með fjölbreyttar aðferðir til að skilja hvernig leikrit, gjörningar og sviðsverk verða til, hvernig þau hafa áhrif á áhorfendur og hvernig þau endurspegla samfélag, menningu og samtímann.
Nemendur kynnast bæði klassískum aðferðum leikritagreiningar, sem eiga rætur í hugmyndum Aristótelesar, og nýrri nálgunum sem tengjast póstdramatískum sviðslistum þar sem mörk leikhúss, gjörninga og myndlistar verða oft óskýr. Jafnframt er skoðað hvernig ólíkir straumar og stefnur í leikritun hafa þróast í gegnum tíðina og hvernig samfélagslegar breytingar móta sviðslistir.
Áhersla er lögð á að nemendur þrói eigið gagnrýnið auga og læri að nálgast sviðsverk frá mismunandi sjónarhornum. Með stuttum og skapandi verkefnum frá upphafi námskeiðsins fá nemendur þjálfun í að greina ólík verk, ræða þau og tengja við fræðilegar hugmyndir á lifandi og aðgengilegan hátt.
Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á leikhúsi, menningu, frásögnum og því hvernig sviðslistir geta hjálpað okkur að skilja samfélagið, mannleg samskipti og samtímann á nýjan hátt.
Hæfniviðmið:
Í lok námskeiðsins ætti nemandi að geta:
- greint á milli ólíkra greiningaraðferða sviðslista
- rætt samfélagslegt og sögulegt samhengi þessara aðferða
- aðgreint ólíka strauma og stefnum innan leikritunar
- beitt af nokkurri færni ólíkum aðferðum við greiningu leikverka
- rökrætt í máli og riti ýmis málefni sem tengjast leikritagreiningu
Staðsetning: Fjarkennsla og Húsnæði Háskólans á Akureyri
Dagsetningar kennslu:
September
Þriðjudagur 8. september – kl. 16:30-18:00
Þriðjudagur 15. september – kl. 16:30-18:00
Þriðjudagur 22. september – kl. 16:30-18:00
Þriðjudagur 29. september – kl. 16:30-18:00
Hæfniviðmið
Í lok námskeiðsins ætti nemandi að geta: greint á milli ólíkra greiningaraðferða sviðslista rætt samfélagslegt og sögulegt samhengi þessara aðferða aðgreint ólíka strauma og stefnum innan leikritunar beitt af nokkurri færni ólíkum aðferðum við greiningu leikverka rökrætt í máli og riti ýmis málefni sem tengjast leikritagreiningu- Kennari
- Eyja Sigríður Gunnlaugsdóttir
- Staðsetning
- Fjarkennsla. og Háskólinn á Akureyri
- Tungumál kennslu
- Íslenska
- Umsóknarfrestur
- 9. mar 2026
- Hámarksfjöldi
- 20