Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuÁ námskeiðinu kynnast nemendur aðferðum listamiðaðra rannsókna (Arts-Based Research, ABR) þar sem listform og fræðileg vinnubrögð eru samofin. Nemendur vinna með ólík tjáningarform, s.s. ljósmyndun, hljóð, skapandi skrif, teikningu eða aðrar listrænar nálganir, til að skoða samfélagsleg viðfangsefni á skapandi máta. Áhersla er lögð á reynslumiðað nám, samkennd og tengsl við aðra í gegnum listsköpun.
Frá upphafi námskeiðsins vinna nemendur stuttar æfingar og fá að kynnast ólíkum nálgunum sem leiðir inn í að þróa eigið listamiðað rannsóknarverkefni og kynna niðurstöður í lok námskeiðs.
Í lok námskeiðs ætti nemandi að geta:
• rætt af skilningi hugmyndafræði og aðferðir listamiðaðra rannsókna
• beitt af færni ólíkum listrænum aðferðum í fræðilegri vinnu
• nýtt skapandi aðferðir til að skoða eða miðla samfélagslegum viðfangsefnum
• tjáð sig um eigið vinnuferli og niðurstöður
Þóra Björg Eiríksdóttir
Gunndís Ýr Finnbogadóttir
Háskólinn á Akureyri
íslenska
18. sep 2026
Fáðu fréttir af nýjum námskeiðum og öðrum viðburðum.