Ópera 27
- Dagsetning
- 13.október - 5. nóvember
- Verð
- 59.000 kr.
- Fyrirkomulag
- Staðnám
Á námskeiðinu er fjallað um:
Hver var Gertrude Stein og hvers vegna er hún enn talin einn áhrifamesti listamaður tuttugustu aldarinnar? Á þessu námskeiði verður skyggnst inn í líf og verk Stein og þann heillandi heim listamanna, rithöfunda og hugsuða sem umkringdu hana í París á fyrstu áratugum síðustu aldar.
Fyrsti tími: Björn Halldórsson rithöfundur fjallar um skrif Stein, nýstárlegar hugmyndir hennar um tungumál í skrifum og þau áhrif sem hún hafði á samtíma sinn. Einnig verður rýnt í samband hennar við Alice B. Toklas, sem var bæði lífsförunautur hennar og nánasti samstarfsmaður. Ynda Eldborg listfræðingur segir frá því mikla gerjunartímabili í listum sem átti sér stað í upphafi síðustu aldar og þá listamenn sem umgengust Stein og Toklas, eins og t.d. Pablo Picasso, Henri Matisse, Ernest Hemingway og F. Scott Fitzgerald.
Annar tími: Bjarni Snæbjörnsson leikstjóri óperunnar 27 segir frá sviðsetningu nýlegrar óperu um Stein og Toklas í Borgarleikhúsinu. Íris Björk Gunnarsdóttir óperusöngkona og stofnandi HinÓperunnar segir frá rannsóknum sínum um hinseginleikann í óperum og segir frá 27 út frá sínu sjónarhorni.
Þriðji tími námskeiðsins fer fram í Borgarleikhúsinu þar sem kíkt verður á æfingu á óperunni 27. Þátttakendur fá að sitja æfingu, hitta söngvara og listræna stjórnendur verksins og kynnast því hvernig ópera verður til.
Dagsetningar:
20.október 18-20 – Bjarni og Íris Björk
27.október 18-20 rennsli í Borgarleikhúsinu
3. nóvember – 18-20 – Björn og Aðalheiður
5. nóvember – kl 20.00 sýning í Borgarleikhúsinu
- Kennari
- Björn Halldórsson
Bjarni Snæbjörnsson
Íris Björk Gunnarsdóttir
Aðalheiður L Guðmundsdóttir - Staðsetning
- Húsnæði Listaháskóla Íslands og Borgarleikhúsið
- Tungumál kennslu
- Íslenska
- Umsóknarfrestur
- 20. okt 2026