Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuUnnið verður með mismunandi náttúruleg textílefni, svo sem bómull, hör, ull og silki, og farið yfir hvernig efni eru undirbúin fyrir litun. Þátttakendur kynnast mismunandi litunarferlum, læra að vinna markvisst með plöntur og skrá niðurstöður, þannig að þekkingin nýtist áfram í eigin verkum.
Einnig verður farið yfir hvernig setja má upp náttúrulegt indigo-litunarbað og unnið með indigo í einföldum þrepum. Áhersla er lögð á að skilja eðli baðsins, vinnulag og umhirðu, fremur en flókna tækni, þannig að þátttakendur öðlist traustan grunn til áframhaldandi vinnu.
Námskeiðið er að mestu verklegt og byggir á tilraunum, athugun og samtali. Þátttakendur fá innsýn í umhverfisvænar aðferðir í textílvinnu og hvernig hægt er að tileinka sér þær á ábyrgan og skapandi hátt. Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem þeim sem hafa reynslu og vilja dýpka skilning sinn á náttúrulegri litun og efnisvinnu.
Dagsetningar:
Námskeiðið er haldið tvisvar í viku á þriðjudögum og fimmtudögum frá 17:30 – 20:30 dagana 9. – 25. júní
Vika 3: 23. og 25. júní.
Kennarinn er Sigmundur Páll Freysteinsson er fatahönnuður og textíllistamaður sem starfar með náttúrulega litun og handverk í samtali við landslag og efni. Hann lauk BA-gráðu í fatahönnun frá LHÍ árið 2019 og stundaði í kjölfarið rannsóknarnám við Kyoto Seika University, þar sem hann sérhæfði sig í hefðbundnum japönskum litunaraðferðum.
Sigmundur Páll Freysteinsson
Íslenska
5. jún 2026
Fáðu fréttir af nýjum námskeiðum og öðrum viðburðum.