Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku
Staðnám

Mullholland Drive 25 árum síðar

Dagsetning
23.-25. nóvember
Verð
35.000 kr.
Fyrirkomulag
Staðnám
Sækja um

Hvað er það við þessa mynd sem gerir hana svo einstaka, nánast að táknmynd um framandgervingarkraft listarinnar? Og hvað er það við hugarheim David Lynch sem segir okkur svo margt um möguleika kvikmyndaformsins yfir höfuð? Hvernig er að horfa á þessa mynd í dag, 25 árum síðar?

Um ræðir 3ja kvölda námskeið í lok nóvember þar sem við horfum á myndina og kryfjum hana saman, undir leiðsögn Ásu Helgu Hjörleifsdóttur.

Dagsetningar: 23., 24., og 25. Nóvember

KL. 17-20 

Leiðbeinandi: Ása Helga Hjörleifsdóttir kvikmyndaleikstjóri og dósent við Kvikmyndadeild LHÍ.  Ása Helga hefur skrifað og leikstýrt kvikmyndunum Svaninum (2017) og Svari við bréfi Helgu (2022), ásamt fjölda stuttmynda. Hún hefur einnig unnið með myndlistarmanninum Ragnari Kjartanssyni og leikstýrði m.a. vídjó- og performans verkinu Soap Opera (2025). Áður en Ása Helga flutti til New York til að læra kvikmyndalist við Columbia háskóla nam hún bókmenntafræði við Háskóla Íslands, og fjallaði BA ritgerð hennar einmitt að miklu leyti um kvikmyndina Mulholland Drive.

Sækja um Nánari upplýsingar

Kennari
Ása Helga Hjörleifsdóttir
Staðsetning
Stakkahlíð 1, húsnæði Listaháskóla Íslands
Tungumál kennslu
íslenska
Umsóknarfrestur
23. nóv 2026