Listin að lifa á listinni
- Dagsetning
- 21. og 22. október
- Verð
- 60.000 kr.
Skattar, rekstur og praktískar upplýsingar fyrir skapandi fólk
Við upphaf rekstrar standa einstaklingar frammi fyrir ákvarðanatöku um það hvernig þeir hyggjast haga rekstri sínum. Námskeiðinu er ætlað að svara spurningum sem vakna þegar einstaklingur er að hefja rekstur eða er nýbyrjaður að afla tekna sem sjálfstæður atvinnurekandi.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Rekstrar- og félagaform (rekstur á eigin kennitölu, einkahlutafélag, sameignarfélag, samlagsfélag) og helstu einkenni þeirra.
Skattskyldu. - Virðisaukaskatt
- Bókhaldsskyldu og skyldu til að skila inn ársreikningi.
- Frádráttarbæran rekstrarkostnað og hvernig hann nýtist í rekstri.
- Reglur um úttektir úr rekstri.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að miðla hagnýtri þekkingu til nemenda þannig að þeir fái aukna þekkingu á þeim réttindum og skyldum sem fylgja því að stofna til rekstrar og eigi auðveldara með að taka upplýsta ákvörðun um það hvaða rekstrarform hentar þeirra aðstæðum best.
Námskeiðið er 2 skipti, 3 klst. í senn.
Dagsetningar: 21. og 22 október
Staðsetning: Húsnæði Listaháskólans, Stakkahlíð 1
Ásta er lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Hennar sérsvið eru skatta- og félagaréttur og hún hefur víðtæka reynslu af ráðgjöf á því sviði. Hún starfar núna sem lögmaður hjá Cato lögmönnum og gegnir einnig stöðu framkvæmdastjóra hjá nýsköpunarfyrirtækinu Regn ehf.
- Kennari
- Ásta Kristjánsdóttir
- Staðsetning
- Stakkahlíð 1, 105 Reykjavík
- Tungumál kennslu
- Íslenska
- Umsóknarfrestur
- 21. okt 2026