LEYNDARDÓMAR FÚGUNNAR
- Dagsetning
- 19.nóvember
- Verð
- 11.500 kr.
- Fyrirkomulag
- Staðnám
LEYNDARDÓMAR FÚGUNNAR
Hátindur tónsköpunar og Sísí fríkar út
Atli Ingólfsson hefur öðru hverju tekið þekkt íslensk lög og byggt í kring um þau hljómborðsverk í þessu gamla og rándýra formi sem kallað er fúga. En hvað er svona merkilegt við það og er það í raun einhvers konar hátindur í handverki tónsmíðanna?
Fúgur og kórlög Atla verða flutt á tónleikum í Langholtskirkju þann 22. nóvember. Af þessu tilefni býður Atli til samveru þar sem hann fer ofan í saumana á fúguforminu. Hann veltir fyrir sér eðli og tilgangi þess og rekur upp eitthvað af þeim verkum sem hann hefur sett saman undir þessum merkjum, meðal annars Fúgu um þig og mig, sem samin er kring um lagið Þú og ég eftir Gunnar Þórðarson.
Fyrirlesturinn verður fimmtudaginn 19. nóvember kl. 16:00 og innifalinn í greiðslunni er miði á tónleikana þremur dögum síðar þar sem Eyþór Ingi Jónsson og kammerkórinn Hymnódía koma fram.
Staðsetning: Húsnæði Listaháskólans – Stakkahlíð 1
Samkoman verður um tveir tímar að lengd með skýringum, hlustun og spjalli. Hún krefst ekki mikillar þekkingar á tónlist þótt nokkuð gagn gæti verið í nótnalæsi.
Æviágrip:
Atli Ingólfsson nam tónsmíðar og heimspeki í Reykjavík og síðan á Ítalíu og Frakklandi, og bjó síðan um árabil á Ítalíu og samdi tónlist fyrir flytjendur víða um Evrópu. Hann hefur sett á svið fjögur tónleikhúsverk sín og fjölmörg verka hans hafa verið tekin upp og gefin út. Nýverið kom út heftið Tíu lög fyrir góða kóra með helstu kórlögum hans, en 2022 gaf hann út verkið Elsku Borga mín fyrir 24 raddir og með því bókina Veðurskeyti frá Ásgarði, með hugleiðingum nokkurra höfunda um efni og texta tónverksins. Atli hefur að auki verið iðinn við að gefa út á riti hugleiðingar sínar um tónlist og menningu, meðal annars í Þráðum, vefriti tónlistardeildar LHÍ, þar sem hann hefur verið prófessor í tónsmíðum frá 2016.
- Kennari
- Atli Ingólfsson
- Staðsetning
- Stakkahlíð 1 - Húsnæði Listaháskólans
- Tungumál kennslu
- Íslenska
- Umsóknarfrestur
- 19. nóv 2026