Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Leiðsögn um styrkjaumhverfið – Vinnustofa um gerð styrkumsókna

Dagsetning
11. maí - 8. júní
Verð
65.000 kr.
Sækja um

Á þessari vinnustofu fá þátttakendur leiðsögn við gerð styrkumsókna á sviði lista og menningar.

Vinnustofan skiptist í fimm hluta þar sem þátttakendur kynnast fjölbreyttum möguleikum til að sækja um styrki og læra að nýta þau tækifæri sem standa til boða.

Hvaða styrkir og fjármögnunarleiðir standa til boða fyrir listamannadvöl, sýningarhald og starfslaun listamanna?

Áhersla er lögð á hagnýta nálgun og einstaklingsmiðaða leiðsögn. Þátttakendur læra að móta verkefnalýsingar og/eða greinargerðir um eigin listræna starfsemi, auk þess að gera raunhæfar fjárhagsáætlanir. Einnig verður fjallað um hvernig gervigreind getur bæði nýst og haft neikvæð áhrif við gerð styrkumsókna.

Þátttakendur fá ráðgjöf um gerð og framsetningu ferilmappa, vefsíðna og ferilskráa (CV). Unnið verður að raunhæfum fjárhagsáætlunum og skýrum verk- og tímaáætlunum fyrir verkefni hvers og eins.
Með því að þróa eigin verkefni í samræmi við kröfur tiltekinna styrktarsjóða og deila hugmyndum og reynslu innan hópsins fá þátttakendur tækifæri til að efla færni sína og auka líkur á árangursríkum styrkumsóknum.
Vinnustofan er ætluð fólki sem starfar á sviði lista og menningar og vill öðlast þekkingu, þjálfun og stuðning við gerð fjölbreyttra styrkumsókna.

Leiðbeinandi: Annabelle von Girsewald
Dagsetning: 11. maí – 8. júní 2027
Fyrirkomulag: Fimm vikur, á þriðjudögum kl. 16:00–18:00.

Sækja um Nánari upplýsingar

Kennari
Annabelle Cecilie Freiin Von Girsewald
Staðsetning
Stakkahlíð 1. Húsnæði Listaháskólans
Tungumál kennslu
Enska
Umsóknarfrestur
11. maí 2027