Lýsing námskeiðs
Námskeiðið veitir heildstæða innsýn í húðflúrlist frá hönnunarferli til framkvæmdar. Fjallað er um sögu og þróun húðflúra, stöðu þeirra í samtímanum og helstu stíla og stefnur.
Lögð er megináhersla á teikningu, uppbyggingu myndefnis, hönnun fyrir húð og tæknilega framkvæmd. Nemendur kynnast þeim tækjum og búnaði sem notaður er við húðflúrgerð og læra faglega og örugga notkun þeirra. Námskeiðið er að hluta verklegt.
Kennari er Jón Páll Halldórsson, einn reynslumesti húðflúrlistamaður landsins. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóli Íslands (nú Listaháskóli Íslands) og síðar við Capilano University. Hann hefur starfað sem yfir karakterhönnuður hjá CCP Games við þróun EVE Online, sem yfirhönnuður hjá LazyTown og starfar nú einkum við húðflúrlist samhliða teiknimyndagerð.
Markmið
Markmið námskeiðsins er að nemendur:
-
öðlist skilning á sögu og samhengi húðflúrlistar
-
kynnist helstu stílum og fagurfræðilegum nálgunum
-
þrói hæfni í teikningu og hönnun fyrir húð
-
öðlist grunnþekkingu á tækjabúnaði og öruggri framkvæmd
Skipulag
Námskeiðið stendur yfir í tvær vikur og fer fram þrjá daga í viku.
Kennsla er bæði fræðileg og verkleg, með áherslu á einstaklingsmiðaða leiðsögn og vinnu nemenda að eigin verkefnum.
Staðsetning: Húsnæði Listaháskólans, Stakkahlíð 1
Kennsludagar:
19. október – 29. október
Kennt er mánudaga – þriðjudaga og fimmtudaga kl.18.30-21.15
Æskilegt er að þátttakendur hafi grunnþekkingu á teikningu og myndbyggingu.
Þar sem námskeiðið er að hluta verklegt er gert ráð fyrir að nemendur hafi aðgang að eigin grunnbúnaði, þar á meðal húðflúrvél sem notar cartridge-nálar.
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Sjá frekari upplýsingar: Fræðslustyrkir
Sækja um →
Nánari upplýsingar →
- Kennari
- Jón Páll Halldórsson
- Staðsetning
- Húsnæði Listaháskóla Íslands, Stakkahlíð 1
- Tungumál kennslu
- Íslenska
- Umsóknarfrestur
- 16. okt 2026