Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Grunnnámskeið á Revit

Dagsetning
5. - 14. október
Verð
55.000 kr.
Sækja um

Þetta námskeið veitir arkitektum og hönnuðum grunnfærni í Autodesk Revit og upplýsingalíkönum mannvirkja (BIM). Nemendur fá fyrst yfirsýn yfir notendaviðmót og helstu tól í Revit, læra á umhverfið í hugbúnaðinum ásamt því að búa til og breyta einföldu upplýsingalíkani, flytja út  á IFC skráarsniði og setja upp teikningar, snið og deili.

Kennslan fer fram í tölvustofunni í Stakkahlíð 1, nemendur fá aðgang að tölvu og Revit á meðan námskeiðið stendur yfir. 

Grunnatriði BIM – þar á meðal þróunarstig byggingahluta (LOD), samhæfð hönnunargögn, samræmingar- og árekstrargreiningar og upplýsingastjórnun yfir líftíma byggingar – eru kynnt í upphafi og ítrekuð í gegnum allt námskeiðið. Nemendur kynnast því hvernig BIM ferli styður bætta samvinnu, aukin gæði hönnunargagna og upplýsta ákvarðanatöku.

Verklegar æfingar fela meðal annars í sér vinnu með Revit-hlut, setja upp hæðir og útsýni, viðbætur og breytingar á einingum og gerð teikninga. Nemendur læra einnig að samþætta þverfagleg gögn með því að flytja inn og skipuleggja skrár eins og DWG-teikningar, og átta sig á því hvernig arkitektalíkön falla inn í sameinað BIM líkan.

Námskeiðið fer fram í fimm lotum og skiptist í sýnikennslu, leiðbeinandi verklag og verkefnavinnu. Milli lota leysa nemendur stutt undirbúningsverkefni sem studd eru leiðbeiningum og kennslumyndböndum.

Að námskeiði loknu geta nemendur unnið örugglega í Revit, skilið helstu BIM-hugtök og tekið þátt í BIM hönnunarferli – sem leggur traustan grunn að frekara námi í stafrænni og samræmdri hönnun.

Námskeiðið verður á þessum dögum:

5. október : 16-20

7. október : 16-20

12. október: 16-20

14. október: 16-19

Staðsetning: Húsnæði Listaháskóla Íslands í Stakkahlíð 1

Kennari: Ingibjörg er tækniteiknari og byggingafræðingur og hefur unnið sem sérfræðingur í BIM í yfir áratug. Hún kennir BIM, Revit og upplýsingatækni í mannvirkjagerð við HR og hefur síðastliðin ár unnið sem Deildarstjóri BIM og stafrænnar þróunar hjá Ísta

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Sjá frekari upplýsingar: Fræðslustyrkir

Sækja um Nánari upplýsingar

Kennari
Ingibjörg Birna Kjartansdóttir
Tungumál kennslu
Íslenska
Umsóknarfrestur
4. okt 2026