Gæddu gítarinn þinn lífi II
- Dagsetning
- 14. janúar - 1. febrúar
- Verð
- 75.000 kr.
Gæddu gítarinn þinn lífi II
Námskeiðið er sjálfstætt framhald af Gæddu gítarinn þinn lífi I.
Í upphafi verður farið stuttlega yfir (eða rifjuð upp) atriði sem kennd eru þar, s.s. hvernig hugsa skal um hljóðfærið, hvernig skal velja og setja í nýja strengi og hvernig stillt er eftir eyranu með aðstoð tónkvíslar.
Meginefni námskeiðsins er þó gítarleikurinn sjálfur. Kennd eru grunnatriði (handstöður, ásláttur), hvernig leikið er bæði með nögl og með fingrum hægri handar, hvernig sjálfstæðar línur (bassa- eða laglínur) eru dregnar fram og hvernig áslátturinn er gerður fallegri og fjölbreyttari.
Þá eru grunnatriði hljómfræði kennd í því skyni að auka skilning á því hvernig lög eru samin og sérstök áhersla er lögð á taktskynjun og hvernig útfæra má mismunandi takttegundir þannig að vel fari í gítarleiknum sjálfum.
Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem búa yfir nokkurri reynslu í gítarleik, þ.e. ekki þá sem koma að hljóðfærinu í fyrsta sinn.
Þó hér sé um að ræða hópkennslu verður rými fyrir einstaklingsmiðaða kennslu inni á milli. Áherslan er þó alltaf á samspil, þ.e. að njóta þess að spila falleg lög með öðrum.
Dagsetning: 14.janúar – 1. febrúar
Námskeiðið er kennt á mánudögum og fimmtudögum – Kl. 20-21.30
Staðsetning: Húsnæði Listaháskólans í Skipholti
Kennari: Pétur Jónasson gítarleikari og prófessor í tónlistardeild Listaháskólans
Pétur lauk einleikaraprófi í klassískum gítarleik frá Estudio de Arte Guitarrístico í Mexíkóborg árið 1980 og var síðar við framhaldsnám á Spáni um nokkurra ára skeið. Hann lauk meistaragráðu (MSc) með láði á sviði raunvísindarannsókna í tónlist og sviðslistum (Performance Science) frá Royal College of Music (RCM) í London árið 2015 og varði doktorsritgerð sína (PhD) 2024 frá sama skóla.Pétur hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín. Árið 1990 var hann tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs, fyrstur íslenskra einleikara, og hlaut einnig heiðursstyrk úr Sonning-sjóðnum í Kaupmannahöfn. Hann var valinn til að leika fyrir Andrés Segovia á sögufrægu námskeiði í University of Southern California í Los Angeles og hlaut í kjölfarið styrk til náms frá spænska ríkinu. Þá lék hann til úrslita í alþjóðlegu Andrés Segovia gítarkeppninni í Granada. Hann var þrívegis handhafi Royal College of Music Award á árunum 2017-2019. Pétur hefur margsinnis hlotið starfslaun listamanna.
- Kennari
- Pétur Jónasson
- Tungumál kennslu
- Íslenska
- Umsóknarfrestur
- 14. jan 2027