Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku
Staðnám

Gæddu gítarinn þinn lífi

Dagsetning
20.október - 12. nóvember
Verð
75.000 kr.
Fyrirkomulag
Staðnám
Sækja um

Er gítar úti í horni heima hjá þér, eða inni í geymslu, sem þér þykir vænt um og hefur alltaf langað að spila á? Er hann rykfallinn, vantar í hann strengi eða hefur hann ekki verið stilltur í mörg ár? Viltu læra að hugsa um hann svo vel fari í framtíðinni? Og hvernig í ósköpunum spilar maður á hann?

Markmiðið með þessu skemmtilega og fróðlega námskeiði er að gæða slík þögul og einmana hljóðfæri lífi svo þau fái að hljóma í höndunum á eigendum þeirra inn í bjartar sumarnæturnar sem framundan eru.

Við metum ástand hljóðfærisins og kynnumst sögu þess. Strengir eru fjarlægðir og hljóðfærið hreinsað og gert fallegt. Nýir strengir eru settir í og kennt hvernig á að stilla með tónkvísl og nákvæmri hlustun. Í framhaldinu eru fyrstu gripin kennd, og að lokum spila allir saman.

Dagsetning: 20.október- 12. nóvember Kl. 17-19

Staðsetning: Húsnæði Listaháskólans í Skipholti

Þriðjudaginn 20. október
Fimmtudaginn 22.október
Þriðjudagur 27.október
Fimmtudagur 29.október
Fimmtudagur 5.nóvember
Fimmtudagur 12.nóvember

Kennari: Pétur Jónasson gítarleikari og forseti tónlistardeildar
Pétur lauk einleikaraprófi í klassískum gítarleik frá Estudio de Arte Guitarrístico í Mexíkóborg árið 1980 og var síðar við framhaldsnám á Spáni um nokkurra ára skeið. Hann lauk meistaragráðu (MSc) með láði á sviði raunvísindarannsókna í tónlist og sviðslistum (Performance Science) frá Royal College of Music (RCM) í London árið 2015 og varði doktorsritgerð sína (PhD) 2024 frá sama skóla.Pétur hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín. Árið 1990 var hann tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs, fyrstur íslenskra einleikara, og hlaut einnig heiðursstyrk úr Sonning-sjóðnum í Kaupmannahöfn. Hann var valinn til að leika fyrir Andrés Segovia á sögufrægu námskeiði í University of Southern California í Los Angeles og hlaut í kjölfarið styrk til náms frá spænska ríkinu. Þá lék hann til úrslita í alþjóðlegu Andrés Segovia gítarkeppninni í Granada. Hann var þrívegis handhafi Royal College of Music Award á árunum 2017-2019. Pétur hefur margsinnis hlotið starfslaun listamanna.

Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Sjá frekari upplýsingar: Fræðslustyrkir

Sækja um Nánari upplýsingar

Kennari
Pétur Jónasson
Staðsetning
Húsnæði Listaháskólans í Skipholti
Tungumál kennslu
Íslenska
Umsóknarfrestur
20. okt 2026