Framkoma og tjáning
- Dagsetning
- 27., 28., og 29. október
- Verð
- 67.000 kr.
- Fyrirkomulag
- Staðnám
Framkoma og tjáning – aukið öryggi, áhrif og trúverðugleiki
Örugg framkoma skiptir máli – hvort sem þú ert að kynna hugmynd, leiða fund, flytja erindi, kenna eða koma fram fyrir hönd fyrirtækis.
Á þessu hagnýta námskeiði fá þátttakendur verkfæri og þjálfun til að efla öryggi sitt, tjá sig af meiri krafti og nýta rödd, líkamsbeitingu og eigin persónuleika til að ná betur til annarra.
Námskeiðið hentar sérstaklega stjórnendum, sérfræðingum, kennurum og öðru fagfólki sem vill styrkja framkomu sína í starfi – hvort sem það er á fundum, í fyrirlestrum og kynningum, í kennslu eða öðrum aðstæðum þar sem mikilvægt er að koma skilaboðum skýrt og sannfærandi á framfæri.
Hvað færð þú út úr námskeiðinu?
Þátttakendur vinna meðal annars með að:
- auka öryggi og sjálfstraust í framkomu
- beita röddinni markvissar og af meiri krafti
- nýta líkamsstöðu og líkamstjáningu til að styrkja nærveru og trúverðugleika
- koma flóknu efni skýrt og sannfærandi á framfæri
- takast á við spennu og óöryggi sem getur fylgt því að standa frammi fyrir hópi
- þekkja og nýta eigin styrkleika í samskiptum
- undirbúa og fínstilla fyrirlestra, ræður og kynningar.
Markmiðið er ekki að kenna eina „rétta“ leið til að koma fram. Þvert á móti er unnið með persónuleika og styrkleika hvers þátttakanda og leitað leiða til að gera framkomuna öruggari, trúverðugri og áhrifaríkari – án þess að hún verði óeðlileg eða lærð.
Hagnýt og einstaklingsmiðuð þjálfun
Kennslan byggir á virkri þátttöku og tekur mið af þörfum hvers og eins. Unnið er með raddtækni, framburð, líkamsbeitingu og aðferðir úr leiklist sem nýtast beint í raunverulegum aðstæðum í atvinnulífinu.
Þátttakendur fá jafnframt tækifæri til að vinna með eigið efni, svo sem fyrirlestur, kynningu eða ræðu. Þar er unnið með uppbyggingu, texta, flutning og þær fínstillingar sem geta skipt sköpum þegar ná þarf athygli og trausti áheyrenda.
Námskeiðið er því ekki aðeins fræðsla um góða framkomu heldur verkleg þjálfun í að standa sterkar í eigin hlutverki og koma þekkingu, hugmyndum og skilaboðum betur til skila.
Fyrir hverja?
Námskeiðið hentar meðal annars stjórnendum og millistjórnendum, sérfræðingum, ráðgjöfum, kennurum og fræðafólki, verkefnastjórum og öðrum sem þurfa reglulega að kynna, leiða, kenna eða tala fyrir framan hóp.
Fyrirkomulag:
Þrjú skipti: 27., 28. og 29. október
Tími: kl. 16:00–18:00
Staðsetning: Stakkahlíð 1 – Húsnæði Listaháskóla Íslands
„Hugsaðu um þetta sem öðruvísi líkamsrækt – þjálfun í rödd, nærveru og framkomu sem nýtist þér á hverjum degi í starfi.“
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Sjá frekari upplýsingar: Fræðslustyrkir
Kennari – Sigrún Sól
Sigrún Sól býr yfir áralangri reynslu af þjálfun í leiklist, raddbeitingu og framkomu. Hún er menntuð sem leikari, leikstjóri og leiklistarkennari, með meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun, auk sérhæfðs náms í raddþjálfun.
Hún hefur kennt á fjölbreyttum skólastigum, meðal annars við Listaháskóla Íslands og Kvikmyndaskóla Íslands, auk þess að halda námskeið og sinna einstaklingsmiðaðri þjálfun.
Í starfi sínu hefur Sigrún meðal annars þjálfað stjórnmálafólk, stjórnendur og viðskiptafólk, fræðimenn og annað fagfólk í framkomu og tjáningu. Hún hefur einnig komið að endurmenntun fyrir Lögregluna með námskeiðum í faglegri framkomu.
Undanfarin sex ár hefur hún jafnframt starfað við leikaraval í gegnum fyrirtæki sitt Iceland Casting og haldið sérhæfð námskeið fyrir leikara í senuvinnu fyrir kvikmyndir.
Þessi fjölbreytta reynsla gerir henni kleift að nálgast framkomu ekki sem staðlaða tækni heldur sem persónulega færni sem hægt er að þjálfa, þróa og nýta til að hafa meiri áhrif í starfi.
- Kennari
- Sigrún Sól Ólafsdóttir
- Tungumál kennslu
- Íslenska
- Umsóknarfrestur
- 27. okt 2026