Frá stefnu til framkvæmda – Hagnýt stjórnenda- og stefnumótunarþjálfun með áherslu á menningarmál og skapandi greinar
- Dagsetning
- 11.janúar - 22.febrúar
- Verð
- 150.000 kr.
- Einingar
- 5 ECTS
- Fyrirkomulag
- Staðnám
Frá stefnu til framkvæmda – menningarmál og skapandi greinar
Hagnýt stjórnenda- og stefnumótunarþjálfun með áherslu á menningarmál og skapandi greinar.
5 ECTS einingar á meistarastigi – hagnýtt örnám fyrir fólk sem vill hafa áhrif.
Hvernig breytum við góðum hugmyndum og metnaðarfullri stefnu í raunverulegar breytingar?
Það er eitt að móta stefnu – annað að hrinda henni í framkvæmd.
Í opinberri stjórnsýslu, menningarmálum og skapandi greinum er sífellt kallað eftir skýrri framtíðarsýn, markvissri forgangsröðun og árangri. En hvernig tryggjum við að stefna verði meira en orð á blaði? Hvernig tengjum við pólitískar áherslur, opinbera fjármögnun og samfélagsleg markmið við raunverulegar aðgerðir?
Í þessu örnámi á meistarastigi öðlast þátttakendur þekkingu og hagnýt verkfæri til að vinna með stefnumótun og framkvæmd hennar – allt frá greiningu og ákvarðanatöku til forgangsröðunar, innleiðingar og árangursmats.
Sérstök áhersla er lögð á menningarmál og skapandi greinar, þar sem listrænt, samfélagslegt og hagrænt gildi mætast. Þátttakendur læra að greina samspil þessara þátta, móta rökstudda stefnu og styðja við upplýsta ákvarðanatöku.
Hvað færð þú út úr náminu?
Að loknu námskeiði hefur þú öðlast aukna færni til að:
- Greina forsendur árangursríkrar stefnumótunar og þá þætti sem ráða úrslitum um framkvæmd hennar.
- Tengja stefnu við framkvæmd, fjármögnun, skýrar aðgerðir og mælanleg markmið.
- Skilja ákvarðanatöku og forgangsröðun innan opinberrar stjórnsýslu og menningarmála.
- Meta listrænt, samfélagslegt og hagrænt gildi menningar og skapandi greina.
- Móta rökstuddar tillögur sem nýtast við stefnumótun, ákvarðanatöku og innleiðingu.
Fyrir hverja?
Námskeiðið er sérstaklega ætlað starfsfólki ráðuneyta, sveitarfélaga, opinberra stofnana og menningarstofnana, stjórnendum og sérfræðingum í skapandi greinum, sem og öðrum sem vilja efla hæfni sína til að móta stefnu, hafa áhrif á ákvarðanir og stuðla að árangursríkri framkvæmd.
Um námskeiðið
Í námskeiðinu er fjallað um kvikmyndir, tónlist, sviðslistir, hönnun, bókmenntir og myndlist sem listgreinar, atvinnugreinar og samfélagsleg fyrirbæri.
Þátttakendur kynnast því hvernig opinber stefna mótar starfs- og rekstrarumhverfi skapandi greina, hvernig styrkjakerfi og stofnanaumhverfi hafa áhrif á þróun þeirra og hvernig meta má hagrænt, samfélagslegt og menningarlegt gildi án þess að þrengja að listrænu sjálfstæði.
Áhersla er lögð á greiningu stefnumótunarskjala, notkun gagna og mælikvarða, útflutnings- og nýsköpunartækifæri og gagnrýna umræðu um tengsl menningarlegs gildis, samfélagslegs ávinnings og hagrænnar þýðingar.
Þátttakendur vinna með íslensk og alþjóðleg dæmi og móta eigin rökstudda stefnumótunargreiningu eða tillögu sem tengist tiltekinni skapandi grein.
Þrjár meginstoðir námskeiðsins
1. Skapandi greinar sem viðfangsefni stefnumótunar
Hvernig og hvers vegna móta stjórnvöld stefnu um listir og skapandi greinar? Hverjir skilgreina markmið, mælikvarða og samfélagslegan ávinning? Hvernig tengjast pólitískar áherslur, opinber fjármögnun og framkvæmd stefnu?
2. Hagrænt gildi og verðmætasköpun
Hvernig má meta framlag listgreina til atvinnulífs, nýsköpunar, útflutnings, byggðaþróunar, ferðaþjónustu og ímyndar landsins? Hvaða tækifæri felast í skapandi greinum og hvar liggja takmarkanir hagrænna mælikvarða?
3. Gagnrýnin nálgun og ábyrg stefnumótun
Hvaða hættur fylgja því að líta fyrst og fremst á listir og menningu sem drifkraft hagvaxtar? Hvernig má samræma listrænt frelsi, menningarlegt gildi, opinberan stuðning og samfélagslega ábyrgð?
Kennari
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, alþjóðahagfræðingur og fyrrverandi menningarmálaráðherra.
Lilja miðlar þekkingu sinni og reynslu af stefnumótun, opinberri ákvarðanatöku og samspili stjórnmála, efnahagslífs og menningar. Námskeiðið gefur þátttakendum tækifæri til að tengja fræðilega þekkingu við raunveruleg viðfangsefni og reynslu úr stjórnsýslu og stefnumótun á sviði menningarmála og skapandi greina.
Einingar: 5 ECTS á meistarastigi
Staðsetning: Listaháskóli Íslands, Stakkahlíð 1
Tímabil: 11. janúar – 22. febrúar
Kennslutími: Mánudaga og miðvikudaga kl. 16:30–18:30
Efldu þekkingu þína, styrktu faglega hæfni og öðlastu 5 ECTS einingar á meistarastigi – með námi sem tengir stefnumótun við raunverulegar áskoranir og tækifæri.
Hæfniviðmið
Inntökuskilyrði:
Umsækjendur þurfa að hafa lokið prófi á bakkalárstigi eða sambærilegu námi.
Námið er kennt hjá Opna Listaháskólanum og samsvarar 5 ECTS einingum á meistarastigi.
Námið er unnið í samstarfi við listkennsludeild LHÍ.
Kennt er á íslensku.
Markmið námskeiðs
Að námskeiði loknu eigi nemendur að geta:
- Greint og borið saman stefnumótun í ólíkum skapandi greinum;
- Skilið hvernig menningarlegt, samfélagslegt og hagrænt gildi skarast;
- Beitt grunnhugtökum úr menningarhagfræði og stefnumótun við mat á listgreinum;
- Unnið með íslensk og alþjóðleg stefnumótunargögn á gagnrýninn hátt;
- sett fram rökstudda stefnumótunartillögu eða greiningu fyrir tiltekna listgrein.
Hæfniviðmið: Nemandi skal að loknu námskeiði geta:
- útskýrt lykilhugtök skapandi greina sem menningarlegs, samfélagslegs og hagræns viðfangsefnis í íslensku og alþjóðlegu samhengi.
- greint opinber stefnumótunarskjöl um skapandi greinar með hliðsjón af markmiðum, mælikvörðum, hagsmunaaðilum og samfélagslegum ávinningi.
- beitt grunnhugtökum menningarhagfræði og stefnumótunar við mat á hagrænu og menningarlegu gildi tiltekinnar listgreinar.
- borið saman íslenskar og alþjóðlegar nálganir við stuðning, fjármögnun, útflutning eða nýsköpun í skapandi greinum.
- metið styrkleika, takmarkanir og möguleg áhrif hagrænna mælinga á listrænt sjálfstæði, opinberan stuðning og ábyrga stefnumótun.
- mótað rökstudda stefnumótunargreiningu eða tillögu fyrir tiltekna skapandi grein með vísun í gögn, fræðileg hugtök og stefnumótunarsamhengi.
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Sjá frekari upplýsingar: Fræðslustyrkir
- Kennari
- Lilja Dögg Alfreðsdóttir
- Staðsetning
- Húsnæði Listaháskóla Íslands - Stakkahlíð 1, 105 Reykjavík
- Tungumál kennslu
- Íslenska
- Umsóknarfrestur
- 8. jan 2027