Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Viðmótshönnun og stafræn hönnun í Figma

Dagsetning
9.-19. nóvember
Verð
110.000 kr.
Sækja um

Viðmótshönnun og stafræn hönnun í Figma

Á námskeiðinu lærir þú grunnatriði viðmótshönnunar og kynnist fjölbreyttum möguleikum Figma í gegnum verklegar æfingar. Farið verður yfir hvernig hugmyndir verða að skýrum og notendavænum viðmótum fyrir vefi og öpp, allt frá fyrstu skissum að gagnvirkum frumgerðum.

Við skoðum einnig hvernig tilkoma gervigreindar hefur breytt vinnuferli hönnuða og hvernig hún getur stutt við hugmyndavinnu, útfærslur og prófanir. Áhersla er lögð á að nýta tæknina með gagnrýnu hugarfari og hafa þarfir notenda að leiðarljósi.

Figma nýtist í fleira en viðmótshönnun. Á námskeiðinu verður einnig komið inn á hvernig nota má tólið í almenna stafræna hönnun, framsetningu hugmynda og einfaldar hreyfingar sem glæða hönnunina lífi.

Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja skerpa á færni sinni í Figma og kynnast nýjum leiðum í stafrænni hönnun.

Námskeiðið er 3 skipti, 3 klst. í senn.

Mánudaginn 9. nóvember
Fimmtudaginn 12. nóvember
Mánudaginn 16. nóvember
Fimmtudaginn 19. nóvember

kl. 16:00-19:00

Kennari:  Björgvin Pétur Sigurjónsson

Björgvin Pétur Sigurjónsson er hönnuður, frumkvöðull og einn af stofnendum hönnunarstofunnar Jökulá. Hann hefur yfir áratugar reynslu af hönnun og hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum á sviði viðmótshönnunar, notendaupplifunar, vörumerkja og hreyfigrafíkur.

Björgvin er með BA-gráðu í grafískri hönnun frá University of Hertfordshire og hefur einnig numið margmiðlunarhönnun, grafískri miðlun og hreyfimyndagerð. Hann hefur haldið fyrirlestra um hönnun og tækni, meðal annars um hönnunarkerfi og framtíð vörumerkjastaðla.

Undanfarið hefur Björgvin lagt sérstaka áherslu á að tengja saman hönnun, gervigreind og þróun stafrænna lausna. Hann hefur nýtt gervigreind við að hanna og smíða stafræna vörur og kannað hvernig ný verkfæri geta stytt leiðina frá hugmynd að virkri lausn. Í kennslunni miðlar hann þeirri reynslu með hagnýtri nálgun á skapandi vinnu og möguleika tækninnar.

Þú gætir átt rétt á fræðslustyrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun. Sjá nánari upplýsingar um fræðslustyrki.

Sækja um Nánari upplýsingar

Staðsetning
Húsnæði Listaháskóla Íslands í Stakkahlíð
Tungumál kennslu
Íslenska
Umsóknarfrestur
9. nóv 2026