61. Feneyjatvíæringurinn í myndlist 2026
- Dagsetning
- 24. september
- Verð
- 4.900 kr.
Ert þú á leið til Feneyja?
Feneyjatvíæringurinn í myndlist er ein mikilvægasta alþjóðlega stórsýning samtímalistar og er nú haldinn í 61. sinn. Á hverju ári ferðast fjöldi listunnenda til borgarinnar, en umfang sýningarinnar getur virst mikið: aðalsýning, um 100 þjóðarskálar og fjöldi samhliða viðburða víðs vegar um borgina.
Á þessu stutta námskeiði færðu hnitmiðað yfirlit og hagnýta leiðsögn, frá sjónarhorni sýningarstjóra Íslenska skálans 2007, sem nýtist við undirbúning og skipulag heimsóknar.
Á námskeiðinu verður fjallað um
- Sögu Feneyjatvíæringsins og þróun hans
- Framlag Íslands og íslenska skálann
- Yfirskrift og áherslur tvíæringsins 2026
- Þjóðarskála og helstu samhliða viðburði
- Hvernig hægt er að velja sér leið um sýninguna út frá eigin áhugasviði
Ávinningur
Að námskeiði loknu munt þú:
- hafa skýra innsýn í samhengi og mikilvægi tvíæringsins
- þekkja framlag Íslands og skipulag þess
- hafa yfirsýn yfir helstu sýningar og viðburði ársins
- geta sett saman eigin dagskrá fyrir heimsókn
Fyrirkomulag
Námskeiðið fer fram í tveimur lotum 10. júní – Kl.17 – 19.30
Fjallað verður um efnið í fjórum meginhlutum:
sögu tvíæringsins, framlag Íslands, sýninguna 2026 og skipulag heimsóknar.
Staðsetning: Stakkahlíð 1, húsnæði Listaháskóla Íslands
Kennari
Hanna Styrmisdóttir er sjálfstætt starfandi sýningastjóri og ráðgjafi á sviði menningar. Hún var prófessor í sýningagerð við Myndlistardeild Listaháskóla Íslands (2020–2024) og listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík (2012–2016).
Árið 2007 var hún sýningastjóri íslenska skálans á 52. Feneyjatvíæringnum, þar sem hún vann með Steingrími Eyfjörð að sýningu hans Lóan er komin.
Hanna hefur diplómagráðu á meistarastigi í gagnrýnum fræðum frá Malmö Konsthögskola, MA-gráðu í myndlist frá University of the Arts London og BFA-gráðu frá Parsons School of Design í París og New York.
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Sjá frekari upplýsingar: Fræðslustyrkir
- Kennari
- Hanna Guðrún Styrmisdóttir
- Staðsetning
- Stakkahlíð 1, húsnæði Listaháskóla Íslands
- Tungumál kennslu
- íslenska
- Umsóknarfrestur
- 23. sep 2026
- Hámarksfjöldi
- 100