Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Sumarnámskeið í píanóleik

image description
  • Dagsetning

    4.-16. ágúst

  • Verð

    85.000 kr.

  • Fyrirkomulag

    Staðnám

  • Sækja um

Alþjóðlega píanókeppnin WPTA Iceland IPC26 & sumarnámskeið í Salnum 4. – 16. ágúst 2026

Alþjóðlega píanókeppnin WPTA Iceland IPC26 og sumarnámskeið verða haldin í annað sinn í Salnum 4. – 16. ágúst í samvinnu við Opna Listaháskólann, Salinn og Tónlistarskóla Kópavogs. Kópavogsbær er áfram traustur bakhjarl píanókeppninnar eins og á fyrra ári en þetta metnaðarfulla verkefni byggir á að veita ungum píanóleikurum á aldrinum 10-25 ára tækifæri til að flytja tónlist fyrir alþjóðlega dómnefnd í keppnisumhverfi af þeim hæstu gæðum sem Salurinn býður upp á. Keppnin er með alþjóðlega vottun Alink-Argerich Foundation og eru vegleg peningaverðlaun í boði Tónastöðvarinnar og Steinway.

Í tengslum við píanókeppnina verður haldið Alþjóðlegt sumarnámskeið 4. – 13. ágúst í Listaháskóla Íslands, Salnum og Tónlistarskóla Kópavogs þar sem ungum píanóleikurum gefst tækifæri til að taka þátt í meistaranámskeiðum innlendra og erlendra prófessora auk þess að koma fram á tónleikum í Salnum. Allir viðburðir og tónleikar í Salnum í tengslum við Alþjóðlegu píanókeppnina og sumarnámskeiðið verða opnir almenningi án endurgjalds. Opnað verður fyrir umsóknir 1. febrúar nk. og er lokafrestur til að sækja um 1. júní nk. Öllum umsóknum verður svarað fyrir 7. júní.

Sækja um Alþjóðlegu píanókeppnina WPTA Iceland IPC26  HÉR 

Sótt er um sumarnámskeiðið gegnum opni.lhi.is
Allar nánar upplýsingar má finna á

Vegna fyrirspurna er hægt að hafa samband við dr. Nínu Margréti Grímsdóttur, forseta WPTA Iceland, í síma 899 6413 eða í pósti: nmgrimsdottir@gmail.com “

*******************

WPTA Iceland IPC26 & Summer Festival at Salurinn Aug. 4th – 16th 2026

We are proud and delighted to announce that the International Piano Competition and Summer Festival, which took place this past August, will return in the summer of 2026. The project is the result of a strong partnership between WPTA Iceland, Salurinn, Opni LHÍ (the Iceland University of the Arts Open University) and Kópavogur Music School and has already garnered considerable attention for its professionalism and exciting opportunities for young pianists. WPTA Iceland is grateful for the continuing support from the municipality of Kópavogur cultural fund as well as the generous monetary prizes sponsored by Tónastöðin and Steinway. The competition is a proud member of the Alink-Argerich Foundation and features world-class facilities at the Salurinn Concert Hall where all participants will perform for an international jury panel.

In parallel, an International Summer Festival will be held in collaboration with Opni Listaháskólinn, Salurinn and the Kópavogur Music School from August 4th – 13th, 2026. The program includes  MasterClasses and student concerts at Salurinn Concert Hall, led by experienced artists and professors eager to share their knowledge and inspiration with the next generation.

This initiative is a unique opportunity for young pianists aged 10–25 to participate in an international-level competition and education right here in Iceland, and to lay a solid foundation for further artistic growth.

All competition events and festival concerts and masterclasses in Salurinn will be free and open to the public. Applications open February 1st and closing deadline is June 1st. All applications will be answered by June 7th.

To apply to the International Piano Competition please press HÉR

To apply to the International Summer Festival please go to opni.lhi.is

Further information please visit opni.lhi.is & https://www.wpta.info/iceland/

President WPTA Iceland, at +354 899 6413 or email nmgrimsdottir@gmail.com

*******************

Nánari upplýsingar um Alþjóðlegt sumarnámskeið í píanóleik 4. – 13. ágúst 2026

Námskeiðið er byggt upp sem hefðbundið klassískt hljóðfæranám í opnum einkatímum og hóptímum. Námskeiðið er ætlað píanónemendum á háskóla-, framhalds- og miðstigi. Lögð er áhersla á tækniþjálfun, vandaðan tónlistarflutning, ásamt þekkingu á mismunandi tónlistarstílum. Nemendum gefst kostur á því að taka þátt í tónleikum í lok námskeiðs. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á samveru, jafningjamat og tengslamyndun.

Hæfniviðmið

Í lok námskeiðs munu nemendur hafa aukinn skilning á:
  • Tækniþjálfun í píanóleik
  • Virkri þátttöku í masterklössum
  • Tónlistarflutningi, þekkingu og innsæi í mismunandi tónlistarstíla
  • Tengslamyndun og jafningjamati
Kennarar:
Edda Erlendsdóttir, Dr. Nína Margrét Grímsdóttir, Erna Vala Arnardóttir, Peter Máté og erlendir gestakennarar
Tungumál kennslu: Íslenska og Enska
Staðsetning: Húsnæði LHÍ í Skipholti 31, Dynjandi og Flyglasalur, Salurinn í Kópavogi, Tónlistarskóli Kópavogs, Hamraborg 6.
Kennslutímabil: 4. – 13. ágúst  2026, lokatónleikar í Salnum í Kópavogi.
Kennsludagar: Kennt er alla daga einnig helgardaga, kennslutími er frá kl. 10:00 – 17:30.
Kennslufyrirkomulag: 4 einkatímar, hóptímar og lokatónleikar, tímar eru ákveðnir í samráði við nemendur.Námsmat: Virkni í tímum og tónlistarflutningur. Virkir þátttakendur fá skriflega umsögn leiðbeinenda.
Fyrir hverja er námskeiðið: Píanónemendur á háskóla-, framhalds- og miðstigi.

Viðburðir námskeiðsins eru opnir almenningi án endurgjalds.

Einingar: 3 ECTS, einnig er hægt að taka námskeiðið án eininga.

Forkröfur: Námskeiðið er ætlað nemendum á háskóla-, framhalds- og miðstigi í píanóleik.

UMSÓKNARSÍÐAN: Vinsamlegast tilgreinið námsstig, verk, kennara og tónlistarskóla í umsókn.

Verð: 85.000 kr. / EUR 600 (óendurgreiðanlegt)

Nánari upplýsingar: Peter Máté, prófessor í hljóðfæraleik LHÍ, peter@lhi.is

Opið er fyrir umsóknir til 1. júní 2026.

Umsókn til þátttöku í námskeiðinu HÉR

Hámarksfjöldi 45

*******************

More information about the Open Iceland University of the Arts IUA Summer Piano MasterClasses August 4th – 13th 2026

The course is structured as a traditional instrumental course in classical piano performance taught both in open masterclasses and group lessons. The course is intended for piano students at the university level, high school- secondary- and middle school levels. Emphasis is placed on technical training, quality music performance, together with knowledge of different musical styles. Students have the opportunity to participate in a final concert in Salurinn Concert Hall at the end of the course. The Summer Piano MasterClass will focus on fellowship, peer assessment and positive relationship building.

Qualification criteria

At the end of the course, students will have an increased understanding of:
  • Technical training as a part of piano studies
  • Active participation in masterclasses
  • Music performance, knowledge and insight into different musical styles
  • Networking and peer assessment
Professors: Edda Erlendsdóttir, Dr. Nína Margrét Grímsdóttir, Erna Vala Arnardóttir, Peter Máté and International Guest Professors
Language of instruction: Icelandic and English
Location: LHÍ Premises in Skipholt 31, 105 Reykjavík, Dynjandi and Flyglasalur, Salurinn Concert Hall & Kópavogur Music School, Hamraborg 6, 200 Kópavogur.
Teaching period: August 4th – 13th 2026, Final Concert in Salurinn Concert Hall.
Teaching days: Teaching takes place every day, including weekends, teaching hours are from 10:00 – 17:30

Teaching arrangement: 4 private lessons, group lessons and final concert, MasterClasses are scheduled in consultation with the students.

Assessment: Active participation through music perfomance,  active participants receive written feedback from instructors.
Who is the course for: Piano students at the university level, high school- secondary- and middle school levels.

Course events are open to the public free of charge.

Credits: 3 ECTS, the course can also be taken without credits.

Prerequisites: The course is intended for university, secondary and middle school students in piano performance

THE APPLICATION PAGE:  Please indicate the level of study, work list, teacher and music school in the application.

Price: ISK 85,000 / EUR 600 non-refundable

More information: Peter Máté, Professor of instrumental performance IUA, peter@lhi.is
Applications are open from February 1st until June 1st 2026.
Maximum number 45, all applications answered by June 7th.
Application to participate in the course here. 

 

Kennari

Nína Margrét Grímsdóttir
Edda Erlendsdóttir
Peter Máté
Erna Vala Arnardóttir

Staðsetning

Skipholt 31

Tungumál kennslu

íslenska og enska

Umsóknarfrestur

1. jún 2026