Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Sumarnámskeið í Hljómfræði

image description
  • Dagsetning

    11. maí - 18. júní

  • Verð

    45.000 kr.

  • Fyrirkomulag

    Staðnám

  • Sækja um

Kenndar eru undirstöður klassískrar hljómfræði (sætakerfi). Farið í meðferð þríhljóma og sjöundarhljóma í dúr og moll með áherslu á góða framvindu og traust niðurlög. Námskeiðið hentar fyrir byrjendur í hljómfræði og er fyrir nemendur sem munu hefja nám í tónlistardeild Listaháskólans haustið 2026.

Nemendur vinna verkefni heima fyrir hvern tíma. Verkefnunum er skilað inn á Canvas, þar sem kennari fer yfir og setur inn athugasemdir eftir þörfum.

Kennsla fer fram í formi fyrirlestra og er yfirferðin mjög hröð. Til að námskeiðið geti nýst nemendum sem best er því mikilvægt að nemendur vinni verkefnin jafnt og þétt.

  • Námskeiðinu lýkur með lokaprófi og þarf lágmarkseinkunnina 5,0 að standast námskeiðið.
  • Námskeiðið hentar fyrir byrjendur í hljómfræði og er hugsað fyrir nemendur sem munu hefja nám í tónlistardeild Listaháskólans haustið 2026.
  • Námskeiðið er opið öllum en miðpróf í tónfræði er þó æskilegt.“

Námskeiðið er opið öllum

Kennari: Gísli Magnússon

Gísli Magnússon nam tónsmíðar, fyrst við Listaháskóla Íslands en síðar við Konservatoríið í Amsterdam, þaðan sem hann lauk meistaraprófi vorið 2017. Á meðal helstu kennara hans má nefna Gunnar Andreas Kristinsson, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson, Atla Ingólfsson, Joël Bons og Wim Henderickx, en hann hefur einnig sótt námskeið og einkatíma hjá tónskáldum á borð við Kaiju Saariaho, Francisco Filidei og Fabien Lévy.

Í tónsmíðum sínum hefur Gísli lagt megináherslu á að semja fyrir hefðbundin hljóðfæri, allt frá einleiksverkum upp í stór hljómsveitarverk, og hefur hann átt farsælt samstarf með hinum ýmsu hljóðfæraleikurum og -hópum hér á landi, sem og erlendis. Má þar nefna Duo Harpverk, Caput, Jöklu, Elju, Uusinta Ensemble, 4×5 Duo, .abeceda [New Music Ensemble] sem og Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Tónsmíðar Gísla eru gjarnan áferðarríkar og myndrænar og tengjast viðfangsefnin oftar en ekki náttúru, draumum, dulúð og/eða súrrealisma. Í sumum eldri verka hans má heyra ítarlegar lýsingar á fossum, goshverum og öðrum náttúrufyrirbrigðum og eru þau verk hugsuð sem eins konar hljóðskúlptúrar. Í nýrri verkum hans eru viðfangsefnin þó yfirleitt ögn óræðari og gjarnan nokkuð dulræn.

Vorið 2017 var Gísli valinn til þátttöku í Yrkju, tónskáldastofu Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Tónverkamiðstöðvar, og lauk því samstarfi með frumflutningi á verkinu Akvocirkulado á Myrkum músíkdögum 2018. Síðan þá hafa verk Gísla hljómað á ýmsum hátíðum hér á landi og erlendis, t.d. Norrænum músíkdögum, ISCM World New Music Days, Musiikin Aika og Bled Contemporary Week.

Auk tónsmíða sinnir Gísli kennslu tónfræðigreina við Listaháskóla Íslands, Tónlistarskóla Garðabæjar og Píanóskóla Þorsteins Gauta.“

Kennt er tvisvar í viku í alls 12 skipti, kl. 17:00-19:00 mánudaga og fimmtudaga

Staðsetning: Skipholt 31, þar sem tónlistardeildin er til húsa.

Maí:
Mán 11. maí
Mið 13. maí
Mán. 18. maí
Fim. 21. maí
Þriðjudagur 26. maí  (mánud. er annar í hvítasunnu)
Fim. 28. maí

Júní:
Mán. 1. júní
Fim. 4. júní
Mán. 8. júní
Fim. 11. júní
Mán. 15. júní
Fim. 18. júní

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Sjá frekari upplýsingar: Fræðslustyrkir


Kennari

Gísli Magnússon
Einar Torfi Einarsson

Tungumál kennslu

Íslenska

Umsóknarfrestur

11. maí 2026