Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuUppsetning og sögusvið Moulin Rouge! Söngleiksins
Þetta dásamlega ör-námskeið er haldið í samstarfi Opna Listaháskólans og Borgarleikhúsins.
Uppsetning og sögusvið Moulin Rouge! Söngleiksins er á þessu námskeiði í forgrunni og þátttakendur fá tækifæri til að heimsækja Borgarleikhúsið og kynnast verkinu nánar.
Kafað er ofan í heillandi heim Parísar á Belle Époque tímabilinu, hið byltingarkennda Montmartre hverfi og uppruna goðsagnakennda can-can dansins.
Uppgötvaðu söguna, listina og arfleifðina sem gerði Moulin Rouge að alþjóðlegu tákni um ást, fegurð og frelsi.
Brynhildur Guðjónsdóttir leikstjóri veitir einstaka innsýn inn í uppsetninguna á Moulin Rouge söngleiknum ásamt góðum gestum.
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Borgarleikhúsið.
Fyrirkomulag
4. nóvember kl. 16:00-18:00 Listaháskóli Íslands, Stakkahlíð 1.
8 nóvember kl. 17:00-18:00 í Borgarleikhúsinu.
Kennari
Brynhildur Guðjónsdóttir leikstjóri söngleiksins og fyrrverandi leikhússtjóri.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Sjá frekari upplýsingar: Fræðslustyrki
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Borgarleikhúsið.
Brynhildur Guðjónsdóttir
ice
4. nóv 2025
Fáðu fréttir af nýjum námskeiðum og öðrum viðburðum.