Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Senuvinna fyrir kvikmyndir

image description
  • Dagsetning

    30. október - 17. nóvember - 19:00-22:00

  • Verð

    70.000 kr.

  • Fyrirkomulag

    Staðnám

  • Sækja um

Námskeiðið vinsæla, senuvinna fyrir kvikmyndir snýr aftur í Opna Listaháskólanum

Námskeiðið er sniðið að leikurum og áhuga leikurum sem vilja auka við möguleika sína og breidd í hlutverkavali.
Frábært tækifæri til að efla öryggi og leikgleði!

Námskeiðið er byggt upp með það að leiðarljósi að hver einstaklingur fái pláss og vægi – tækifæri til að blómstra útfrá því hvar hann er staddur.

Unnið er með aðferðir leiklistarinnar útfrá lykilhugtökunum: hindranir, ásetningur og vendingar.

Í upphafi eru æfingar sem allar miða að því að nemendur styrkist og skilji hvað drífur áfram senur þar sem fókusinn er út á við – á viðfangsefnið.

Smám saman verða æfingarnar flóknari og senur eru unnar í hverjum tíma.

Nemendur þurfa að vinna 2 og 2 og undirbúa verkefni milli tíma.

Í lokin eru senur teknar upp og nemendur hafa aðgang eftir á að þeim senum sem þau unnu að.

Dagskrá námskeiðs:

Unnið er í 6 skipti – 3 tímar í senn. Alls 18 stundir.

Mánudaga og Fimmtudaga – 19:00 – 22:00
30. október – 17. nóvember

Kennari námskeiðsins er Sigrún Sól

Sigrún Sól hefur kennt Senuvinnu fyrir kvikmyndir um árabil. Hún er menntuð sem leikkkona, leikstjóri og leiklistarkennari.
Hún hefur bæði leikstýrt og kennt á grunnskóla, framhaldsskóla, og háskóla stigi.
Hún kenndi við leiklistardeild Listaháskóla Íslands, Kvikmyndaskóla Íslands og hefur haldið námskeið í Þýskalandi, Finnlandi og unnið hér á landi með Eistneskum leikurum gegnum Erasmus prógramm.
Sigrún Sól hefur einnig stjórnað leikaravali i kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og auglýsingum um árabil.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Sjá frekari upplýsingar: Fræðslustyrkir

Tungumál kennslu

Íslenska & enska - Icelandic & English

Umsóknarfrestur

23. okt 2025