Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuÁ námskeiðinu kynnast nemendur því hvernig aðferðafræðin Metadesign getur opnað fyrir hönnunarhugsun í ólíku samhengi. Metadesign er hönnunarheimspeki og aðferðafræði sem leggur áherslu á að skapa skilyrði fyrir breytingar til bóta allt frá hugmynd í hönnun og að umbreytingu kerfa. Hönnunarhugsun er niðurbrot og sýnileikagerð hugmyndar með miðlun, innleiðingu og framkvæmd að markmiði.
Lögð verður áhersla á samvinnu, teymisskilning, kortlagningu tengsla og byggingu, hugmyndavinnu, samtal, skipulagningu og miðlun. Nemendur greina aðstæður og skoða tengingar, sjá möguleika og hanna ramma sem gerir litlum og stórum teymum kleift að þróa umbætur og miðla til innleiðingar og framkvæmdar. Nemendur læra að skipuleggja, miðla og setja fram greiningu og breytingartillögu til framtíðar sem byggir á raunverulegum áskorunum úr eigin veruleika.
Nemendur vinna í teymi að hugmynd um umbætur að eigin vali. Teymi velur og skipuleggur hönnunarferli frá hugmynd að miðlun framkvæmanlegrar umbótavinnu.
Áfanginn mun byggja á teymisvinnu og skilum á skrefum við lausn verkefna í fjarkennslu. Áfanginn hefst á þriggja daga staðarnámi í samstarfi og skarpri verkefnavinnu þar sem nemendur læra aðferðir Metadesign og hönnunarhugsunar.
Verkefni áfangans taka mið af nemendavöldum, raunverulegum áskorunum í samfélagi, skapandi greinum, tengingum við atvinnulíf, umhverfi og samfélagi.
Í lok námskeiðs ætti nemenda að geta:
Staðsetning: Fjarkennsla og Háskólinn á Akureyri
Dagsetningar:
Halldóra Guðrún Ísleifsdóttir
Fjarkennsla og Háskólinn á Akureyri
Íslenska
11. sep 2026
Fáðu fréttir af nýjum námskeiðum og öðrum viðburðum.