Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuÁ þessu námskeiði fá nemendur tækifæri til að kynnast skapandi leiðum til að þróa hugmyndir, vinna með breytingar og finna lausnir á raunverulegum áskorunum í samfélagi og atvinnulífi. Unnið verður með aðferðafræði Metadesign og hönnunarhugsun, þar sem áhersla er lögð á samvinnu, sköpun, samtal og nýjar leiðir til að sjá tækifæri í eigin umhverfi.
Nemendur læra að greina aðstæður, sjá tengingar milli fólks, umhverfis og samfélags og þróa hugmyndir sem geta leitt til jákvæðra breytinga. Áhersla er lögð á að gera hugmyndir sýnilegar og framkvæmanlegar, frá fyrstu hugmynd að skipulagðri tillögu eða verkefni.
Námskeiðið byggir á teymisvinnu þar sem nemendur vinna saman að verkefnum sem tengjast þeirra eigin áhugasviði eða raunverulegum áskorunum úr samfélagi, atvinnulífi, skapandi greinum eða umhverfi. Með því fá þeir reynslu af hugmyndavinnu, skipulagningu, miðlun og framkvæmd verkefna í samstarfi við aðra.
Kennslan hefst á þriggja daga staðlotu þar sem nemendur taka þátt í lifandi og skapandi vinnu, læra aðferðir námskeiðsins og vinna saman að fyrstu skrefum verkefna sinna. Eftir það fer námið fram í fjarkennslu með reglulegri leiðsögn og verkefnavinnu.
Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á nýsköpun, skapandi hugsun, samfélagsþróun og því hvernig hægt er að umbreyta hugmyndum í raunverulegar aðgerðir og umbætur.
Í lok námskeiðs ætti nemenda að geta:
Staðsetning: Fjarkennsla og Háskólinn á Akureyri
Kennari: Halldóra Guðrún Ísleifsdóttir
Dóra Ísleifsdóttir starfar á sviði hönnunar, fræða og rannsókna þar sem hún beinir sjónum að tengslum hönnunar, menningar og samfélags. Í verkum sínum og skrifum hefur hún rannsakað hvernig hönnun mótar afstöðu, hegðun, sjálfsmynd og sjónræna menningu og hvernig gagnrýnin nálgun getur opnað nýjar leiðir til að skilja hlutverk hönnunar í samtímanum.
Dagsetningar:
Halldóra Guðrún Ísleifsdóttir
Fjarkennsla og Háskólinn á Akureyri
Íslenska
11. sep 2026
Fáðu fréttir af nýjum námskeiðum og öðrum viðburðum.