Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuLangar þig að kynnast einni áhrifamestu danstækni allra tíma?
Graham-tæknin er án efa ein sú áhrifamesta og langlífasta danstækni nútímans og er þekkt fyrir kraftmikla og líkamlega túlkun á dansforminu. Tæknin er hugsuð sem sviðstækni, sköpuð til þess að sýna á sviðsvettvangi og reynir mikið á frásagnarhæfni dansarans í hreyfingu. Graham tæknin hefur haft áhrif á marga dansara og danshöfunda samtímans og má þar nefna Pina Bausch, William Forsythe og Ohad Naharin, sem dæmi. Einnig er tæknin krafa í flestum framhaldsstigum í dansi (d. Juilliard, NYU Tisch o.fl) og kynnast flestir samtímadansarar tækninni á einhverjum tímapunkti á sínum ferli.
Námskeiðið er opið öllum áhugasömum, en reynsla af ballett eða nútímadansi er æskileg. Dansarar, leikarar og annað sviðslistafólk er sérstaklega hvatt til þátttöku.
Farið verður vel í undirstöðuatriði tækninnar, contraction, release, spiral og shift of weight. Tímarnir eru uppbyggðir á hefðbundinn hátt: gólfæfingar (floorwork), center (miðja), og travelling combinations (samsetningar sem ferðast um rýmið). Áhersla er lögð á að nemendur fái tækifæri að upplifa tæknina án pressu og njóti sín að dansa í anda Martha Graham.
„I know my dances and technique are considered deeply sexual, but I pride myself in placing onstage what most people hide in their deepest thoughts…It bemuses that my school in New York has been called “the House of the Pelvic Truth,” because so much of the movement comes from a pelvic thrust.“ (Martha Graham)
Dagsetningar: Mánudaga og miðvikudaga 4.-27.maí kl.17.30-18.45
Staðsetning. Húsnæði Listaháskólans í Laugarnesi.
Guðrún Svava hefur starfað sem dansari bæði í New York og á Íslandi. Hún sérhæfði sig í Graham-tækninni við Martha Graham School of Contemporary Dance í New York, þar sem hún öðlaðist að auki viðurkenningu með kennsluréttindi í Graham tækninni. Hún var jafnframt sólóisti í Graham II, nemadansflokki Martha Graham Dance Company og tók þátt í sýningum flokksins víða um Bandaríkin.
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Sjá frekari upplýsingar: Fræðslustyrkir
Guðrún Svava Kristinsdóttir
íslenska
1. maí 2026
Fáðu fréttir af nýjum námskeiðum og öðrum viðburðum.