Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuNámskeiðslýsing:
Í námskeiðinu verður fríspuni kynntur og hann skoðaður í víðu samhengi. Unnið verður með spuna söngraddar og hljóðfæris með því m.a. að skoðað hvaða hljóð líkaminn og hljóðfærið býður upp á og vinna með þau hljóð í spunavinnu. Áhersla verður lögð á æfingar með rödd og/eða hljóðfæri, þar sem hver þátttakandi vinnur með sitt hljóðfæri. Þátttakendum verða kynntar leiðir til þess að nota bæði rödd og hljóðfæri sem hljóðgerfil.
Fjölbreyttar tækniæfingar verða notaðar til að þjálfa fríspuna. Spuni söngraddar/hljóðfæris og markviss hlustun verður þjálfuð bæði í hóp og í einstaklings verkefnum þar sem nemandur þjálfast í að spinna frjálst með rödd og hljóðfæri. Mikið verður lagt upp úr hlustun þar sem notast er við ákveðið kerfi til þess að meta hana. Það kerfi verður svo tengt við almenna tónlistarkennslu.
Námskeiðið hentar vel þeim sem kenna tónlist eða hyggjast kenna tónlist og vilja nýta fríspuna í störfum sínum.
Hæfniviðmið:
Í lok námskeiðs ættu nemendur nemendur að geta:
Fyrirkomulag:
Kennt verður á mánudögum milli 16:00 og 19:00 í Stakkahlíð 1 Dagsetningar: 13. 20. 27. apríl og 4. og 11. maí 2026
Kennari: Marta Hrafnsdóttir söng- og tónmenntakennari. Marta lauk tónmenntakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík meðfram söngnámi. Hún lærði einnig við Flanders Operastudio í Brussel og hefur tekið þátt í fjölmörgum óperuuppfærslum. Undanfarin ár hefur hún sérhæft sig í kennslu og flutningi fríspuna og meðal annar kennt Fríspuna við Listkennsludeild LHI.
Marta Hrafnsdóttir
Stakkahlíð 1
Íslenska
10. apr 2026
Fáðu fréttir af nýjum námskeiðum og öðrum viðburðum.