Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Að skapa tengsl í gegnum listamiðaða rannsókn

image description
  • Dagsetning

    22.september - 3.nóvember

  • Verð

    55.000 kr.

  • Fyrirkomulag

    Fjarnám | Staðnám

  • Sækja um

Á þessu námskeiði fá nemendur tækifæri til að kanna hvernig listsköpun getur orðið leið til rannsókna, skilnings og nýrrar sýnar á samfélagið og mannlega reynslu. Unnið er með aðferðir listamiðaðra rannsókna (Arts-Based Research, ABR), þar sem skapandi tjáning og fræðileg hugsun mætast á lifandi og persónulegan hátt.

Nemendur kynnast fjölbreyttum tjáningarformum eins og ljósmyndun, hljóði, skapandi skrifum, teikningu og öðrum listrænum aðferðum sem hægt er að nota til að skoða samfélagsleg málefni, reynslu og tengsl fólks við umhverfið sitt. Áhersla verður lögð á reynslumiðað nám, samkennd, ígrundun og samtal þar sem listsköpun verður leið til að skilja bæði sjálfan sig og aðra betur.

Frá upphafi námskeiðsins vinna nemendur skapandi æfingar sem hjálpa þeim að prófa ólíkar nálganir og þróa eigin hugmyndir. Með því læra þeir hvernig list getur orðið rannsóknaraðferð sem opnar fyrir nýjar spurningar, sjónarhorn og möguleika. Í lok námskeiðsins þróa nemendur eigið listamiðað rannsóknarverkefni og kynna niðurstöður sínar á skapandi hátt.

Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á listum, rannsóknum, samfélagsmálum og skapandi vinnu og vilja kanna hvernig list getur skapað dýpri skilning, tengsl og nýjar leiðir til að miðla þekkingu og reynslu.

Hæfniviðmið:

Í lok námskeiðs ætti nemandi að geta:
• rætt af skilningi hugmyndafræði og aðferðir listamiðaðra rannsókna
• beitt af færni ólíkum listrænum aðferðum í fræðilegri vinnu
• nýtt skapandi aðferðir til að skoða eða miðla samfélagslegum viðfangsefnum
• tjáð sig um eigið vinnuferli og niðurstöður

Staðsetning: Húsnæði Háskólans á Akureyri og í fjarnámi

Dagsetningar:
Þriðjudagur 22. september  – kl.16:30-18:00 -kennsla fer fram  á netinu
Laugardagur 3 okt, – kl 10:00-15:00 – Staðlota
Sunnudagur 4 okt, – kl 10:00-15:00. – Staðlota
Mánudagur 5 okt, – kl 12:30-17:30. – Staðlota
Þriðjudagur 20 okt – kl. 16:30-18:00 – kennsla fer fram  á netinu

Þriðjudagur 3 nóv – kl. 16:30-18:00 – kennsla fer fram  á netinu

Kennarar:
Gunndís Ýr Finnbogadóttir er myndlistarkona sem vinnur þvert á miðla og nálgast listsköpun sem rannsókn á tengslum við staði, efni, sögur, nærveru og sameiginlegri upplifun. Í verkum sínum skapar hún innsetningar, textaverk, gjörninga, bókverk, teikningar, myndbönd og viðburði. Verk hennar mótast gjarnan af því samhengi sem þau eru sýnd í, þar sem þau bregðast við byggingarlist, landslagi og félagslegum aðstæðum. Skráning, ganga, samræða og hæg athugun eru endurteknar aðferðir í vinnu hennar. Í starfi sínu við listkennsludeild Listaháskóla Íslands, hefur hún þróað verkefni sem byggja á samvinnu, skynjun og tengslamyndun þar sem áhersla er lögð á tengsl líkamlegrar hreyfingar, sérstaklega göngu, við umhverfi og hugsun. Verk hennar kanna hvernig list getur opnað nýjar leiðir til samskipta, hlustunar og þátttöku og hvernig listræn iðkun opnar leiðir til skynjunar og skilnings á heiminum.

Björg Eiríksdóttir er myndlistarkona sem vinnur með fjölbreytta miðla þar sem náttúra, og tengsl manns og umhverfis eru í forgrunni. Í sköpun sinni sameinar hún næma athugun, efniskennd og persónulega frásögn til að skapa verk sem kalla fram kyrrð, ígrundun og nálægð við staði og reynslu. Í verkum sínum leggur hún áherslu á samskiptin við miðilinn þar sem unnið er út frá marglaga upplifun og umhverfi. Verk hennar opna fyrir samtal um tengsl fólks við náttúru, samfélag og eigið innra landslag.

Kennari

Þóra Björg Eiríksdóttir
Gunndís Ýr Finnbogadóttir

Staðsetning

Háskólinn á Akureyri

Tungumál kennslu

íslenska

Umsóknarfrestur

18. sep 2026