Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

10 ráð við gerð viðskiptaáætlana og öflun fjármagns – Masterclass

image description
  • Dagsetning

    29. og 30. okt

  • Verð

    50.000 kr.

  • Fyrirkomulag

    Staðnám

  • Sækja um

Viðskiptaáætlanir og fjármögnun

Góð og skýr viðskiptaáætlun er mikilvæg þegar stofnað er nýtt fyrirtæki. Hún er einnig mikilvæg við gerð nýs rekstrarverkefnis eða ef efla á fyrirtæki sem þegar er starfrækt. Í viðskiptaáætlun þarf að skilgreina með skýrum hætti stefnu og markmið ásamt leiðum til að ná markmiðum. 

Ef ákvörðun er tekin um öflun fjármagns frá fjárfestum, er mikilvægt að til staðar sé góður skilningur á mismunandi tegundum fjárfesta ásamt kostum og göllum sem þeim fylgja. Að nálgast fjárfesta á markvissan hátt er afar mikilvægt. 

  

Námskeiðið skiptist í tvo hluta:

  • Viðskiptaáætlanir
    • Framsetning viðskiptaáætlunar
    • Efni viðskiptaáætlunar
  • Fjármögnun
    • Tegundir fjárfesta
    • Hvernig fjárfestar henta best á hverju stigi?
    • Hvernig er best að nálgast fjárfesta?

Markmið:

Markmiðið með námskeiðinu er að miðla og auka þekkingu fólks á aðferð og efni sem tíðkast að nota við gerð og framsetningu viðskiptaáætlunar. Einnig verða kynntar mismunandi tegundir fjárfesta ásamt kostum og göllum eftir því á hvaða stigi verkefnið eða fyrirtækið er.  

 

Skipulag:

Námskeiðið er tvö skipti, 2 klst. í senn.

Miðvikudag og fimmtudag 29. og 30. október – 16:30-18:30 í Listaháskólanum, Stakkahlíð 1.

 

Leiðbeinandi:

Áslaug Magnúsdóttir er með Cand. juris gráðu frá Háskóla Íslands, LL.M. frá Duke háskóla og MBA frá Harvard Business School. Hún hefur víðtæka reynslu bæði sem fjárfestir og frumkvöðull og er meðal annars stofnandi tískuvefsíðunnar Moda Operandi og fatamerkisins Kötlu. Hún hefur reynslu af fjármögnun bæði á Íslandi og í öðrum löngum. Á meðan Áslaug var forstjóri Moda Operandi aflaði hún fjármögnunar frá fjárfestingarsjóðum sem mörkuðu næst stærsta ´venture capital financing round´ allra tíma í Bandaríkjunum af félagi stofnað einvörðungu af konum.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Sjá frekari upplýsingar: Fræðslustyrkir

Kennari

Áslaug Magnúsdóttir

Staðsetning

Stakkahlíð 1

Tungumál kennslu

Íslenska

Umsóknarfrestur

28. okt 2025