Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Uppistand fyrir alla

image description
  • Dagsetning

    9. apríl - 30.apríl

  • Verð

    70.000 kr.

  • Fyrirkomulag

    Staðnám

  • Sækja um

Hefur þú einhvern tímann hlegið að sjálfum þér og hugsað: „Þetta gæti verið efni í uppistand“? Þá er þetta námskeið fyrir þig.

Á Uppistandi fyrir alla lærir þú að breyta eigin reynslu í skemmtilegar og áhrifaríkar frásagnir — hvort sem þú ert að segja sögur í veislu, taka til máls á fundi eða dreymir um að standa á sviði. Engin reynsla er nauðsynleg, aðeins áhugi og jákvætt hugarfar. Þú kynnist því hvernig byggja má upp sterka gamansögu, nýta rödd og líkamsbeitingu markvisst, þróa persónulegan stíl og ná tengingu við áhorfendur.

Einnig er fjallað um framkomukvíða og leiðir til að takast á við hann. Megináherslan er þó á verklega vinnu þar sem þú þróar þitt eigið efni og flytur það í styðjandi og hvetjandi umhverfi.

Námskeiðinu lýkur með uppistandi á sviði þar sen áhorfendum gefst tækifæri til að njóta afrakstursins.

Kennari: Þorsteinn Guðmundsson, leikari og sálfræðingur.

Dagsetningar eru:

KL 18 -20
Fimmtudagurinn 9. apríl
Mánudagurinn 13. apríl
Fimmtudagurinn 16. apríl
Mánudagurinn 20. apríl
Mánudagurinn 27. apríl
Fimmtudagurinn 30. apríl

Staðsetning: Húsnæði Listaháskólans í Laugarnesi.

 

Kennari

Þorsteinn Guðmundsson Stephensen

Tungumál kennslu

Íslenska

Umsóknarfrestur

24. mar 2026