Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Tísku -og portrait ljósmyndun

image description
  • Dagsetning

    1. - 22. September

  • Verð

    110.000 kr.

  • Fyrirkomulag

  • Sækja um

Tísku -og portrait ljósmyndun

Á námskeiðinu læra þátttakendur helstu grunnatriði portrait- og tískuljósmyndunar með áherslu á skapandi vinnubrögð, ljósasetningu, hugmyndavinnu og vinnu með förðunarfræðingum og fyrirsætum. Námskeiðið veitir innsýn inn í heim ljósmyndarans og hvernig hægt er að þróa eigin stíl og byggja upp sterkt portfolio.

Ásta deilir reynslu sinni úr meira en 25 ára ferli í tísku- og auglýsingabransanum og leiðir þátttakendur í gegnum ferlið — frá hugmyndavinnu og undirbúningi að myndatöku, eftirvinnslu og birtingu. Farið verður yfir hvernig skapa má áhrifamiklar ljósmyndir bæði í stúdíói og með náttúrulegri birtu.

Megináhersla námskeiðsins er verkleg og fá þátttakendur tækifæri í lok námskeiðsins til að vinna með faglegu teymi stílista, förðunarfræðinga og fyrirsæta í stúdíói. Leitast verður við að búa til skapandi og uppbyggilegt vinnuumhverfi þar sem þátttakendur þróa eigin hugmyndir og fá persónulega leiðsögn í gegnum myndatökurnar.

Á námskeiðinu er meðal annars fjallað um:

  • Portrait- og tískuljósmyndun
  • Leikstjórn fyrirsæta á tökustað
  • Hugmyndavinnu og moodboard
  • Náttúrulega lýsingu og stúdíólýsingu
  • Vinnuferli í tísku- og auglýsingaljósmyndun
  • Samvinnu við stílista, förðunarfræðinga og fyrirsætur
  • Eftirvinnsla
  • Hvernig á að koma sér á framfæri sem ljósmyndari

Námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum ljósmyndurum sem vilja þróa sinn stíl, efla sjónræna hugsun, öðlast meira öryggi í myndatökum og læra hvernig hægt er að koma sér og verkum sínum á framfæri í ljósmyndaheiminum. Þátttakendur sem eiga myndavél eru hvattir til að taka hana með á námskeiðið. Aðrir fá aðgang að myndavél á meðan á myndatökum stendur.

Dagsetningar:
1. september:
Fjallað um tísku-og portrait ljósmyndun, grunnatriði í ljósmyndun, leikstjórn,ferlið frá hugmynd til birtingar, að búa til stemmningu með lýsingu.
8. september:
Farið í gegnum hugmyndir, uppsetning moodboard, undirbúningur myndataka.
15. september:
Myndataka með förðunarfræðingum og fyrirsætum
22. september:
Að koma sér á framfæri sem ljósmyndari, edita myndir, eftirvinnsla,
1. oktober:
Ljósmyndasýning

Tími:
18:00 – 20:00

Staðsetning:
Listaháskólinn Laugarnesi

Kennari:
Ásta Kristjáns, ljósmyndari og stofnandi Studio8. Ásta er ljósmyndari með áratuga reynslu af því að vinna með fólki fyrir framan myndavélina. Ferill hennar hófst sem fyrirsæta í Japan og leiddi hana víða um heim áður en hún sneri sér að ljósmyndun af fullum krafti.

Menntun hennar við Parsons School of Design í New York ásamt námi hjá Nick Knight í London mótaði þann stíl sem hún er þekkt fyrir í dag – myndir sem fanga persónuleika og einstaka sögu hvers einstaklings.

Ásta stofnaði STUDIO8 í Reykjavík fyrir rúmum áratug og hefur síðan unnið með fjölbreyttum hópi viðskiptavina, allt frá alþjóðlegum vörumerkjum og fjölmiðlum til frumkvöðla, listafólks og fyrirtækja. Meðal verkefna hennar eru samstarf við Vogue Italia, Vogue India og Surface Magazine

Í öllum sínum verkefnum leggur Ásta áherslu á að skapa traust og afslappað andrúmsloft þar sem fólk fær tækifæri til að njóta sín. Fyrir henni snýst góð ljósmynd ekki aðeins um útlit heldur um að sýna það sem gerir hvern einstakling einstakan.

Samfélagsleg ábyrgð hefur ávallt verið mikilvægur hluti af starfi Ástu og í gegnum árin hefur hún lagt fjölmörgum mannúðar- og hagsmunasamtökum lið með vinnu sinni og notað ljósmyndir til að vekja athygli á mikilvægum málefnum. Meðal þeirra samtaka sem hún hefur unnið með eru Amnesty International, Krabbameinsfélagið, Eitt líf, Downs-samtökin, Barnaspítali Hringsins og Save the Children.


Kennari

Ásta Sigríður Kristjánsdóttir

Staðsetning

Húsnæði Listaháskólans í Laugarnesi

Tungumál kennslu

Íslenska

Umsóknarfrestur

1. sep 2026