Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuHvernig getur fámenn þjóð orðið stórveldi á sviði menningar? Hvers vegna vekja íslenskar kvikmyndir, tónlist, bókmenntir, hönnun og myndlist athygli langt út fyrir landsteinana?
Í þessum fyrirlestri fjallar Lilja Alfreðsdóttir, alþjóðahagfræðingur og fyrrverandi menningarmálaráðherra, um það hvernig markviss stuðningur við listir og skapandi greinar getur skapað bæði menningarleg og efnahagsleg verðmæti. Hún setur íslenskt menningarlíf í alþjóðlegt samhengi og sýnir hvernig skapandi greinar stuðla að nýsköpun, atvinnusköpun og auknum lífsgæðum.
Jafnframt verður fjallað um hvernig menning mótar sjálfsmynd þjóðar og gegnir lykilhlutverki í því að byggja upp sterka og jákvæða ímynd Íslands á alþjóðavettvangi.
Fyrirlesturinn hentar öllum sem vilja öðlast dýpri skilning á mikilvægi menningar sem arfleifðar sem þarf að varðveita, drifkrafts nýsköpunar og lykilþáttar í alþjóðlegri samkeppnishæfni fámennrar en skapandi þjóðar.
Staðsetning: Húsnæði Listaháskólans, Stakkahlíð 1
Dagsetning: 23.júní Kl. 16.30-18.30
Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Stakkahlíð 1
Íslenska
23. jún 2026
Fáðu fréttir af nýjum námskeiðum og öðrum viðburðum.