Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuÁ námskeiðinu læra nemendur um grundvallarlögmál dramatíska frásagna og uppbyggingu kvikmyndahandrita. Skilningur eykst á kvikmyndinni sem sjónrænum frásagnarmiðli og gagnast fólki við að móta hugmyndir sínar og halda utan um þær. Þau lögmál og hugmyndir sem verða til umfjöllunar má þó yfirfæra á hverskyns skáldskap.
Góð saga getur fengið fólk til að umbylta lífi sínu. Sækja um skilnað eða fara í stríð! En hvað er saga? Úr hverju eru sögur gerðar? Hvað þarf að vera í sögu? Og af hverju virka sögur eins og þær virka?Á námskeiðinu verður aðaláherslan lögð á verk þátttakenda enda er það hugsað sem ritsmiðja.
Í upphafi skila nemendur inn hugmynd að kvikmynd og eru aðstoðaðir við að þróa hana áfram. Leitast verður við að skapa gagnrýnar og uppbyggjandi umræður um þau verk sem liggja til grundvallar hverju sinni.
Á námskeiðinu er fjallað um:
Námskeiðið er ætlað bæði þeim sem hafa reynslu af skrifum og þeim sem eru nýir á því sviði.
Dagsetningar:
13. apríl – 6.maí
Mánudagar og miðvikudagar kl.18:00 – 21:00
Kennari: Huldar Breiðfjörð, rithöfundur og handritshöfundur
Huldar Breiðfjörð
Íslenska
10. apr 2026
Fáðu fréttir af nýjum námskeiðum og öðrum viðburðum.