Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Húmor í leiklist – Þetta er Laddi

image description
  • Dagsetning

    28. & 30. maí

  • Verð

    35.000 kr.

  • Fyrirkomulag

    Staðnám

  • Sækja um

LADDI – Húmor í leiklist

Vegna mikilla vinsælda höldum við námskeiðið Laddi – Húmor í leiklist aftur þann 28. og 30. maí. 

Húmor er fyrirbæri sem allir þekkja en erfitt reynist að skilgreina. Flestir gera sér grein fyrir hvað vekur hjá þeim hlátur og hvað þeim finnst fyndið, en erfiðara reynist að fá aðra til að hlæja. Húmor er ekki bara grín og gamanmál heldur einnig samskiptatæki sem á sér margar hliðar. Húmor getur verið hamingjuaukandi afl, heilsubót, eineltistæki og hárbeitt vopn, svo eitthvað sé nefnt.

Opni Listaháskólinn og Borgarleikhúsið taka hér höndum saman með Eddu Björgvins, einni ástsælustu gamanleikonu landsins, með einstöku námskeiði í húmor í leiklist tengdu sýningunni Þetta er Laddi.

Sýningin Þetta er Laddi sem slegið hefur í gegn í Borgarleikhúsinu er ævisöguleikrit á borð við Ellý og Níu líf. Í sýningunni fáum við að sjá Ladda hitta á sviðinu persónur á borð við Eirík Fjalar, Elsu Lund, Dengsa og Skrám.

Hver er Laddi? Og hvaðan kemur húmorinn sem hefur verið samofinn húmor heillar þjóðar í bráðum hálfa öld ? Í sýningunni er skyggnst inn í kollinn á Ladda, uppruni gamalkunnra persóna kannaður, þróun íslensks gríns sett undir smásjá og lyklar að manninum sjálfum á bak við grínið dregnir fram – en fyrst og fremst verður hlegið – og þakkað fyrir alla gleðina.

Á námskeiðinu veltum við fyrir okkur hverskyns gamanefni og berum saman fjölmargar tegundir af húmor. Einnig freistum við þess að reyna að fá samferðafólk okkar til að hlæja og rannsökum hvað vekur hlátur og hvað vekur ekki hlátur. Hópurinn mun að auki fá að glíma við að flytja texta (gamanefni)  með það að markmiði að fá aðra til að hlæja.

Námskeiðið hefst þann 28. maí á skoðunarferð um Borgarleikhúsið með Eddu og fá þátttakendur einstaka innsýn í leikhúsið og verkið ásamt því að fræðast um frægasta gamanleikara þjóðarinnar LADDA.

Edda leggur verkefni fyrir hópinn til að hafa í huga á meðan að sýningu stendur sem farið verður yfir á síðari námskeiðisdegi þann 30. maí í húsakynnum Listaháskólans í Laugarnesi.

Miði á sýningu þann 28. maí er innifalinn í námskeiðisgjaldi.

Námskeiðið er kennt 28. & 30. maí

28. maí  Kl. 18:00-22:30Skoðunarferð og sýning í Borgarleikhúsinu.

18:00 – 19:00: „Ladda“ skoðunarferð með Eddu um Borgarleikhúsið.

19:00 – 20:00 – Hópurinn borðar saman á eigin kostnað og Edda leggur fyrir verkefni fyrir hópinn til að hafa í huga á meðan á sýningu stendur.

20:00 – 22:30 – Hópurinn fer saman á sýninguna Þetta er Laddi

30. maí kl. 15:00-18:00  – Námskeið í húmor í leiklist í Laugarnesi.

Leiðbeinandi:

Edda Björgvinsdóttir er leiðbeinandi á þessu námskeiði og lauk Edda prófi frá Leiklistarskóla Íslands 1978. Edda hefur lokið Meistaraprófi í Menningarstjórnun, Diplómu á meistarastigi í Jákvæðri Sálfræði og einnig Sálgæslu. Meðfram leiklistinni hefur EB haldið fyrirlestra og námskeið í velflestum fyrirtækjum landsins og félagasamtökum þar sem boðið er uppá ýmis konar þjálfun, t.d. húmor í samskiptum, tjáningu, ræðumennsku, sjálfsstyrkingu, framsögn o.fl.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Fræðslustyrkir

 

Kennari

Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir

Staðsetning

Borgarleikhúsið & Laugarnes

Tungumál kennslu

Íslenska / Icelandic

Umsóknarfrestur

27. maí 2025