Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Húðflúrlist – frá hönnun til framkvæmdar

image description
  • Dagsetning

    29.apríl - 11.maí

  • Verð

    65.000 kr.

  • Fyrirkomulag

    Staðnám

  • Sækja um

Lýsing námskeiðs

Námskeiðið veitir heildstæða innsýn í húðflúrlist frá hönnunarferli til framkvæmdar. Fjallað er um sögu og þróun húðflúra, stöðu þeirra í samtímanum og helstu stíla og stefnur.

Lögð er megináhersla á teikningu, uppbyggingu myndefnis, hönnun fyrir húð og tæknilega framkvæmd. Nemendur kynnast þeim tækjum og búnaði sem notaður er við húðflúrgerð og læra faglega og örugga notkun þeirra. Námskeiðið er að hluta verklegt.

Kennari er Jón Páll Halldórsson, einn reynslumesti húðflúrlistamaður landsins. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóli Íslands (nú Listaháskóli Íslands) og síðar við Capilano University. Hann hefur starfað sem yfir karakterhönnuður hjá CCP Games við þróun EVE Online, sem yfirhönnuður hjá LazyTown og starfar nú einkum við húðflúrlist samhliða teiknimyndagerð.

Markmið

Markmið námskeiðsins er að nemendur:

Skipulag

Námskeiðið stendur yfir í tvær vikur og fer fram þrjá daga í viku.
Kennsla er bæði fræðileg og verkleg, með áherslu á einstaklingsmiðaða leiðsögn og vinnu nemenda að eigin verkefnum.

Dagsetningar
29. apríl – 11. maí

Kennt er mánudaga – fimmtudaga og föstudaga kl.18.30 – 21.00
Staðsetning: Húsnæði Listaháskólans, Stakkahlíð 1 – stofa H003

Kennsludagar:

  • 29.apríl – miðvikudagur
  • 30.apríl – fimmtudagur
  • 4.maí – mánudagur
  • 7.maí – fimmtudagur
  • 8.maí – föstudagur
  • 11.maí – mánudagur

1.maí er áfram undanskilinn þar sem það er frídagur.

Kennslustundir
Tími í hvert skipti: 18:30–21:00 = 2,5 klst.
Fjöldi kennsludaga: 6
Heildarfjöldi kennslustunda: 15 klst.

Æskilegt er að þátttakendur hafi grunnþekkingu á teikningu og myndbyggingu.

Þar sem námskeiðið er að hluta verklegt er gert ráð fyrir að nemendur hafi aðgang að eigin grunnbúnaði, þar á meðal húðflúrvél sem notar cartridge-nálar.

Kennari

Jón Páll Halldórsson

Tungumál kennslu

Íslenska

Umsóknarfrestur

27. apr 2026