Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Gæddu gítarinn þinn lífi

image description
  • Dagsetning

    14.maí - 4. júní

  • Verð

    75.000 kr.

  • Fyrirkomulag

    Staðnám

  • Sækja um

Er gítar úti í horni heima hjá þér, eða inni í geymslu, sem þér þykir vænt um og hefur alltaf langað að spila á? Er hann rykfallinn, vantar í hann strengi eða hefur hann ekki verið stilltur í mörg ár? Viltu læra að hugsa um hann svo vel fari í framtíðinni? Og hvernig í ósköpunum spilar maður á hann? Markmiðið með þessu skemmtilega og fróðlega námskeiði er að gæða slík þögul og einmana hljóðfæri lífi svo þau fái að hljóma í höndunum á eigendum þeirra inn í bjartar sumarnæturnar sem framundan eru.

Við metum ástand hljóðfærisins og kynnumst sögu þess. Strengir eru fjarlægðir og hljóðfærið hreinsað og gert fallegt. Nýir strengir eru settir í og kennt hvernig á að stilla með tónkvísl og nákvæmri hlustun. Í framhaldinu eru fyrstu gripin kennd, og að lokum spila allir saman.

Dagsetning: 14.maí – 4 júní Kl. 17-19
Staðsetning: Húsnæði Listaháskólans í Skipholti

Fimmtudaginn 14. maí
Þriðjudaginn 19. maí
Fimmtudaginn 21. maí
Þriðjudaginn 26. maí
Miðvikudaginn 27. maí – Kl.18-20
Þriðjudaginn 2. júní og
Fimmtudaginn 4. júní

Kennari: Pétur Jónasson gítarleikari og forseti tónlistardeildar

Pétur lauk einleikaraprófi í klassískum gítarleik frá Estudio de Arte Guitarrístico í Mexíkóborg árið 1980 og var síðar við framhaldsnám á Spáni um nokkurra ára skeið. Hann lauk meistaragráðu (MSc) með láði á sviði raunvísindarannsókna í tónlist og sviðslistum (Performance Science) frá Royal College of Music (RCM) í London árið 2015 og varði doktorsritgerð sína (PhD) 2024 frá sama skóla.
Pétur hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín. Árið 1990 var hann tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs, fyrstur íslenskra einleikara, og hlaut einnig heiðursstyrk úr Sonning-sjóðnum í Kaupmannahöfn. Hann var valinn til að leika fyrir Andrés Segovia á sögufrægu námskeiði í University of Southern California í Los Angeles og hlaut í kjölfarið styrk til náms frá spænska ríkinu. Þá lék hann til úrslita í alþjóðlegu Andrés Segovia gítarkeppninni í Granada. Hann var þrívegis handhafi Royal College of Music Award á árunum 2017-2019. Pétur hefur margsinnis hlotið starfslaun listamanna.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Sjá frekari upplýsingar: Fræðslustyrkir

Kennari

Pétur Jónasson

Tungumál kennslu

Íslenska

Umsóknarfrestur

13. maí 2026