Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku5. maí kl. 17:00
Listaháskóli Íslands, Stakkahlíð
Margverðlaunaði tenórinn Benedikt Kristjánsson heldur fyrirlestur um sönglagaflokkinn Vetrarferðina eftir Franz Schubert (Winterreise), eitt áhrifamesta og þekktasta verk tónbókmenntanna.
Vetrarferðin (1827) er lagaflokkur í tuttugu og fjórum þáttum við ljóð Wilhelm Müller. Verkið fylgir ónafngreindum ferðalangi um myrkt vetrarlandslag þar sem ytri aðstæður og innra tilfinningalíf fléttast saman. Í þessari íhugulu og átakanlegu ferð birtast þemu ástarsorgar, einveru, minninga og tilvistarlegrar leitunar, þar sem náttúran verður spegill sálarástands sögumannsins.
Í fyrirlestrinum mun Benedikt fjalla um sögulegt samhengi verksins, ljóðheim Müllers og tónmál Schuberts, auk þess að varpa ljósi á túlkunarhefðir og þær listrænu áskoranir sem felast í flutningi verksins. Með sinni víðtæku reynslu á alþjóðlegum tónleikapöllum – og djúpri þekkingu á verkinu – veitir Benedikt einstaka innsýn í þetta meistaraverk rómantíkurinnar.
Benedikt Kristjánsson
íslenska
5. maí 2026
Fáðu fréttir af nýjum námskeiðum og öðrum viðburðum.