Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Fríspuni í tónlist

image description
  • Dagsetning

    11. maí - 8. júní

  • Verð

    98.000 kr.

  • Fyrirkomulag

  • Sækja um

Námskeiðslýsing:
Í námskeiðinu verður fríspuni kynntur og hann skoðaður í víðu samhengi. Unnið verður með spuna söngraddar og hljóðfæris með því m.a. að skoðað hvaða hljóð líkaminn og hljóðfærið býður upp á og vinna með þau hljóð í spunavinnu. Áhersla verður lögð á æfingar með rödd og/eða hljóðfæri, þar sem hver þátttakandi vinnur með sitt hljóðfæri. Þátttakendum verða kynntar leiðir til þess að nota bæði rödd og hljóðfæri sem hljóðgerfil.

Fjölbreyttar tækniæfingar verða notaðar til að þjálfa fríspuna. Spuni söngraddar/hljóðfæris og markviss hlustun verður þjálfuð bæði í hóp og í einstaklings verkefnum þar sem nemandur þjálfast í að spinna frjálst með rödd og hljóðfæri. Mikið verður lagt upp úr hlustun þar sem notast er við ákveðið kerfi til þess að meta hana. Það kerfi verður svo tengt við almenna tónlistarkennslu.
Námskeiðið hentar vel þeim sem kenna tónlist eða hyggjast kenna tónlist og vilja nýta fríspuna í störfum sínum.

Hæfniviðmið:
Í lok námskeiðs ættu nemendur nemendur að geta:

  • beitt grunnþáttum spuna með rödd og/eða hljóðfæri,
  • unnið með sögur, myndir og tilfinningar sem kveikjur í tónlistarspuna,
  • nýtt sér hugmyndir um tíma og rúmi í spuna og byggt upp spuna með hliðsjón af, þögn, upphafi og enda.

Fyrirkomulag:
Kennt verður á mánudögum milli 16:00 og 19:00  í Stakkahlíð 1 Dagsetningar: 11. 18. 26. maí og 1. og 8. júní 2026 (26. er þriðjudagurinn eftir Hvítasunnu)

Kennari: Marta Hrafnsdóttir söng/fríspuna – og tónmenntakennari. Marta lauk tónmenntakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík meðfram söngnámi. Hún lærði söng við Koninklijk Conervatorium í Brussel og einnig við Flanders Operastudio í Gent og hefur tekið þátt í fjölmörgum uppfærslum.

Hún stundaði doktorsnám í fríspuna við Estonian Music and Theater Academy EMTA i Tallinn og hefur undanfarin ár sérhæft sig í kennslu og flutningi fríspuna og meðal annar kennt fríspuna við listkennslu og tónlistardeild LHI.

Kennari

Marta Hrafnsdóttir

Staðsetning

Stakkahlíð 1

Tungumál kennslu

Íslenska

Umsóknarfrestur

11. maí 2026