Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuFrelsaðu röddina þína – námskeið í raddspuna fyrir alla áhugasama!
Marga langar að syngja meira í lífi sínu, sér til skemmtunar eða í hóp með öðrum, en hafa kannski aldrei lært söng. Eða hafa lært eitthvað en ekki sungið í mörg ár og vita ekki hvar þau eiga að byrja.
Á námskeiðinu “frelsaðu röddina þína” ætlum við að vinna með það að kynnast röddinni okkar upp á nýtt, í öruggu rými, með leikgleði að leiðarljósi.
Námskeiðið er fyrir alla, óháð bakgrunni.
Unnið verður með spennulosun tengda röddinni og raddbeitingu, léttar söngæfingar en mesta kennslan fer fram í gegnum hópæfingar, radd-leiki og skapandi vinnu með lög.
Eftir námskeiðið ættu nemendur að hafa kynnst röddinni sinni á nýjan hátt, öðlast meira hugrekki til að syngja og nota röddina sína almennt og fengið þjálfun í samvinnu með öðrum í gegnum tónlist og röddina.
Kennsludagar:
Þriðjudagar – 19:00 – 21:00
6. maí
13. maí
20. maí
27. maí
Anna María Björnsdóttir er stundakennari í Listaháskólanum og kennir þar raddspuna. Einnig er hún söngkona, lagahöfundur, heimildarmyndagerðakona og hefur unnið mikið með spuna. Hún er með meistaragráðu í tónlistarkennslufræðum frá Árósarháskóla í Danmörku.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Sjá frekari upplýsingar : Fræðslustyrkur
Anna María Björnsdóttir
Stakkahlíð 1, 105 Reykjavík
Íslenska / Icelandic
2. maí 2025