Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuFramkoma og tjáning – þjálfun fyrir öryggi í framkomu við fyrirlestrahald og framkomu í starfi og kennslu:
Farið er í grunnatriði tjáningar gegnum æfingar og leiki sem hjálpa fólki að verða meðvitað um hvernig það getur nýtt sér líkamstöðu og tjáningu til efla öryggi sitt og framkomu. Eflir sjálfstraust og gleði í starfi og leik.
Aðferðafræði:
Kennslan tekur mið af stöðu og þörfum hvers og eins nemanda, og aðferðir eru valdar með það að markmiði að hámarka árangur einstaklingsins. Unnið er með raddtækniæfingar og líkamsæfingar, með sérstakri áherslu á líkamsstöðu, ásamt aðferðum úr leiklist og radd- og framburðartækni.
Lögð er áhersla á að styrkja nemendur í eigin persónuleika fremur en að móta þá í staðlað form. Nemendur eru hvattir til að þróa og nýta sína einstöku styrkleika, og fá stuðning við að umbreyta eiginleikum sem þeir kunna að hafa litið á sem veikleika í jákvæða og uppbyggilega eiginleika.
Tekið er á algengum áskorunum tengdum framkomu og ræðumennsku, sem oft fá takmarkað rými í hefðbundnu skólakerfi. Unnið er markvisst að því að efla sjálfstraust og breyta neikvæðum hugmyndum um eigin getu í styrkleika.
Jafnframt fá nemendur tækifæri til að vinna með eigin fyrirlestra og ræður, þar sem lögð er áhersla á æfingar, uppbyggingu og fínstillingu texta.
Námskeiðið er 3. skipti – Kl. 16-18
Dagsetningar: 1., 2., og 3. júní
Staðsetning: Stakkahlíð 1.
Öðruvísi líkamsrækt þessa vikur 🙂
Kennari: Sigrún Sól býr yfir áralangri reynslu og víðtækri fagþekkingu á sviði leiklistar, raddbeitingar og framkomu. Hún er menntuð sem leikari, leikstjóri og leiklistarkennari, og hefur meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun. Hún hefur jafnframt sótt sérhæft raddkennslunám hjá virtum raddkennurum.
Hún hefur kennt á flestum skólastigum og starfaði um árabil við kennslu á leiklistarsviði Listaháskóla Íslands. Einnig kenndi hún við Kvikmyndaskóla Íslands. Auk þess hefur hún haldið sjálfstyrkingarnámskeið fyrir Hugarafl og starfað innan framhaldsskóla þar sem hún kenndi námskeið í lífsleikni fyrir nýnema.
Undanfarin sex ár hefur hún starfað mikið við leikaraval í gegnum fyrirtæki sitt, Iceland Casting, og á vegum þess haldið námskeið fyrir leikara undir heitinu Senuvinna fyrir kvikmyndir.
Hún hefur einnig tekið að sér einstaklingsmiðaða kennslu, þar sem meðal annars stjórnmálafólk, viðskiptafólk og fræðimenn úr háskólasamfélaginu hafa nýtt sér þjónustu hennar. Þá hefur hún komið að endurmenntun, meðal annars fyrir Lögregluna, þar sem hún hélt námskeið í framkomu fyrir lögreglumenn.
Sigrún Sól Ólafsdóttir
Íslenska
1. jún 2026
Fáðu fréttir af nýjum námskeiðum og öðrum viðburðum.