Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuFeneyjatvíæringurinn í myndlist er ein mikilvægasta stórsýning á vettvangi myndlistar alþjóðlega.
Á námskeiðinu er stiklað á stóru í sögu hans, litið á tölur sem varpa ljósi á breyttar áherslur síðustu ára og skyggnst á bak við tjöldin í framkvæmd þessa stórviðburðar sem 700 þúsund manns vilja sjá annað hvert ár. Sérstaklega verður fjallað um framlag Íslands frá aldamótunum 2000 og sýning Íslenska skálans 2024, Þetta er mjög stór tala, skoðuð í Listasafni Íslands.
Á námskeiðinu er fjallað um
Ávinningur þinn
Dagsetningar:
Fimmtudagur 20. mars 17:00-19:00
Fimmtudagur 27. mars 17:00-19:00 – heimsókn í Listasafn Íslands á Fimmtudeginum langa
Fimmtudagur 3. apríl 17:00-19:00
Kennari
Hanna Styrmisdóttir er sjálfstætt starfandi sýningastjóri og ráðgjafi. Hún var sýningastjóri Íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum 2007 á sýningu Steingríms Eyfjörð Lóan er komin. Hanna var áður m.a. prófessor í sýningagerð í myndlistardeild Listaháskóla Íslands og listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík. Hún hefur lokið diplómagráðu á meistarastigi í listheimspeki við Listaháskólann í Malmö / Háskólann í Lundi, MA gráðu í myndlist við Chelsea listaháskóla í London og BFA gráðu í myndlist við Parsons School of Design í París og New York.
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Hanna Guðrún Styrmisdóttir
Stakkahlíð 1, 105 Reykjavík
Íslenska / Icelandic
17. mar 2025