Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuBALLETT FYRIR FULLORÐNA
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á samhæfingu, flæði í hreyfingum, öndun og bætta líkamsstöðu í gegnum ballettæfingar. Markmiðið er að njóta sín í gegnum ballettformin, jafnvel endurvekja gamla ást á þessari frábæru danstækni sem leggur grunn að svo mörgum öðrum stílum.
Uppbygging tímans er hefðbundin, byrjað er á stönginni, þá æfingar í miðjum sal, ferðast horn úr horni og hopp í lokin. Æskilegt er að búa yfir grunni í ballett en námskeiðið er opið fyrir alla.
Dagsetningar: 17.febrúar – 24.mars
Staðsetning: Húsnæði Listaháskólans í Laugarnesi
Kennt á þriðjudögum kl.17.30 – 18.45
Kennari: Halla Þórðardóttir
Halla Þórðardóttir hefur starfað sem atvinnudansari hérlendis og erlendis um árabil. Hún var fastráðin við Íslenska dansflokkinn 2013-2024, auk þess að hafa m.a. dansað með Konunglega sænska ballettinum, danshöfundunum Söshu Waltz og Damien Jalet, sem og í fjölmörgum kvik- og dansmyndum. Halla hefur víðfeðma reynslu af danskennslu, þessi misserin er hún stundakennari á samtímadansbraut LHÍ og kennir við Listdansskóla Íslands.
Halla Þórðardóttir
Íslenska
17. feb 2026
Fáðu fréttir af nýjum námskeiðum og öðrum viðburðum.